laugardagur, október 22, 2005

Upphafsblogg

Hér með er bloggsíðu fjölskyldunnar á 39 Don Street í Aberdeen hrundið af stað. Hér verður boðið upp á ýmsan fróðleik og skemmtiefni sem ætti að renna ljúflega niður í landann. Fróðleikshorn verður á sínum stað á þriðjudögum, Hrólfur fer með gamanmál á fimmtudagskvöldum (fimmtukvöldum, haha) en fjölskyldan stefnir svo á að uppfæra síðuna á sunnudögum með fréttum af því sem hefur drifið á daga hennar.

Nú situr fjölskyldan og horfir á X-factor sem er svona "nýtt" idol dæmi en vefstjóri er að setja upp þessa blessuðu síðu.

Ætli við reynum ekki að setja inni einhverjar myndir af því sem er að gerast hérna og kannski aðeins að segja frá því sem við gerum hér í silfurborginni Aberdeen, öðru nafni regnbogaborginni.

Meira kemur á morgun þegar ég verð eitthvað búinn að læra á þessa síðu.

Bergur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home