Við lögðumst í bleyti í klórpolli í morgun og strákarnir voru að sýna okkur sundtaktana sína. Þeir eru búnir að vera á sundnámskeiði að læra skriðsund, kafsund, bakskriðsund og stungur. Eftir það fórum við niður í bæ að ná í bílinn sem treysti sér ekki til að keyra heim í gærkvöldi. Allir voru voða glaðir nema tréið í queen's road park sem er alveg að verða alsbert.
Pabbinn fékk ekki mynd af sér af því að hann þurfti að prófa nýja símann sem hann fékk í staðinn fyrir gamla (nýja) símann sem gaf endanlega upp öndina eftir að hafa byrjað að gefa sig eftir hristing á þvottabrettum á hálendinu síðastu sumar.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home