Fróðleikshorn á þriðjudegi
Áhugasamur einstaklingur kom að máli við einn af ritstjórum þessa vefsvæðis og hann langaði til að vita hversu mikið arsen væri í bergi á Íslandi. Við brugðum því undir okkur betri fætinum og með smá skáldskap og vitneskju um nokkrar kennistærðir um Ísland gátum við metið þessa tölu.
Með því að vita rúmmál Íslands, hlutfall bergtegunda og arseninnihald í bergi fékk reiknispekúlant vefsíðunnar út að alls eru 26 tonn af arseni í íslensku bergi. Þar af 10 tonn í basalti, 4 tonn í ísúru bergi og 12 tonn í súru bergi. Það má gera ráð fyrir að 90% af þessu arseni sé As3+ sem er mjög eitrað form arsens. Því höfum við um 23.5 g af As3+ í jarðskorpunni okkar.
Það má til gamas geta að ef öllu arseni á Íslandi væri byrlað út í fóður hjá mjög stórum rottubónda sem héldi 10 milljarða rotta myndi helmingur rottanna að öllum líkindum deyja vegna ofneyslu arsens.
Ef við gerum ráð fyrir að það þurfi jafn mikið arsen á hvert kíló til að drepa menn og rottur má finna út að arsenið á Íslandi gæti dugað til að draga u.þ.b 4 milljónir manna til dauða sem er t.d. um 70 % dana.

1 Comments:
Einn aulabrandari: en hvað er mikið arsen í Bergi?????
Skrifa ummæli
<< Home