sunnudagur, október 30, 2005

Vikuyfirlit (vikuna 23-30.10 2005)

Því miður gleymdist gamanmál á fimmtudögum og verður því unnin bót á því í næstu viku með alveg “sérstaklega” skemmtilegu gamanmáli.

Vikan gekk átakalaust. Við Bergur erum búin að vera alveg sérstaklega dugleg. Bergur kláraði áfangaskýrslu fyrir Rannís og er búin að vesenast mikið í tækjunum sínum inn á labbi. Mér tókst að efnagreina yfir 300 sýni og finnst það mikið afrek og er búin að vera að hrósa sjálfri mér alla helgina fyrir mikinn dugnað.

Á fimmtudaginn fór ég í felt (vetvangs-vinna) með mastersnema hér í Aberdeen og var að kenna þeim að taka jarðvegssýni, gera sniðlýsingu og mæla sýrustig í jarðvegi. Þetta var alveg einstaklega skemmtilegur dagur og það sem gerði hann svona skemmtilegan var að ég var látin klæðast neongulu-netavesti samkvæmt “safety regulations” hér í Skotlandi og það var ekki möguleiki að sleppa því að klæðast gallanum. Það sem er enn fyndnara var að við vorum að ganga um algjört flatlendi, byggakur hjá skoskum bónda sem var afgirtur bak og fyrir og á alla kanta, langt í burtu frá umferðagötum og ekki eitt einnasta fjall, pollur, straumvatn, ægilega djúpt stöðuvatn eða hvað annað sem gæti mögulega falið í sér einhvejar hættur. Þannig að ég arkaði um í gula gallanum mínum með nemendunum og þakkaði fyrir það að vera ekki með neinn íslenskan nemanda í hópnum sem myndi gera grín af mér það sem eftir væri ævinnar. Ég sæi okkur í anda heima á Íslandi að skylda háskólakennara vera í sjállýsandi búningum við útikennslu. Annars er maður löngu búin að læra hér í Skotaveldi og hætta að spyrja hver röksemdarfærslan sé fyrir hinum ýmsustu reglum og yppta bara öxlum og segja “what ever” eins og sagt er á frummálinu.

Á fimmtudaginn var okkur Bergi svo boðið í Sushi veislu hjá vini okkar úr skólanum. Ég og Maria (spænsk svaka sæt stelpa sem nánast allir stárkarnir í Plant & Soil eru skotnir í) fórum til hans kvöldið áður að hjálpa honum við undirbúninginn sem sést á eftirfarandi mynd.

Það var mjög gaman í veislunni og endaði í mikilli drykkju, ólöglegt Wisky, ekki ólöglegt wisky, Saci, rauðvín, hvítvín og örugglega eitthvað fleira sem ég man ekki hvað var. Á föstudaginn fórum við svo til Egils og Rögnu að passa fyrir þau þar sem þeim var boðið á eitthvað rall.

Það sem eftir var helgarinnar var bara rólegheit. Sjónvarpsgláp, Ex factor er í mesta uppiháldi sem er ný útgáfa af Idol (ég held sko með Shane sem ég er bálskotin í því hann er svo hrikalega sætur þó Bergur sé auðvitað flottastur), bíó, lestur, út að borða á Fridays og göngutúra.

Af strákunum er það að frétta að þeir eru himinlifandi yfir Skotlandi og þá sérstaklega yfir Skene Square Primary School sem er að þeirra sögn langbesti skóli í HEIMI. Þeir hafa aldrei verið mikið fyrir það að spara stóru orðin.

Ætla síðan að enda þetta blogg á að nokkrum myndum svona svo þið getið lifað ykkur soldið inn í okkar líf hér í Abbó.

p.s svo megið endilega fara á http://www.lbhi.is/ þar er að sjá tilkynningu um Rit LBHÍ nr. 5 sem komið út bæði á vef og prenti. Það nefnist „Aðferðir við að lýsa jarðvegssniðum“ og eru höfundar þess Ólafur Arnalds, Bergrún Arna Óladóttir og Rannveig Guicharnaud. Bara smá að monta mig.

Rannveig




2 Comments:

Blogger Svanhildur said...

Frábært að fá nýtt blogg til að skemmta sér yfir. Sammála þér með X-factor Ranna, ég var límd við skjáinn í fyrra þegar þetta byrjaði!:)

9:00 f.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Er sko gjörsamlega "hooked". Var að versla um daginn í ASDA en áttaði mig svo á því að Ex factor væri að byrja, hætti að versla og rauk úr búðinni til að missa örugglega ekki af neinu.

9:46 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home