Fróðleikshorn á þriðjudegi
Þar sem við erum nú nátturufræðingar þykir við hæfi að snerta á mörgum hliðum náttúrunnar. Og við notum að sjálfsögðu heimsmetabókina sem Alexander fékk í afmælisgjöf um daginn.
Það kemur í ljós að mesta mælda útkoma á 24 klukkustundum féll á hinni rómuðu eyju Endurfunda (La Reunion) í Indlandshafi. Þetta gerðist árið 1952 og mældist úrkoman hvorki meiri né minni er 1870 mm.
Til samanburðar má geta þess að þurrasta veðurstöð í heimi er í Atacama eyðimörkinni. Á tímabilinu 1964 til 2005 var meðalársúrkoma 0.5 mm á ári.
Nú og svo ef einhverjir eru að kvarta yfir þessari endalausu rigningu og veseni á Íslandi vill ritstjórn benda á að á Mount Wai-' ale-' ale á Hawaii eru rigningardagar upp í 350 á ári og ársúrkoma er yfir 10 metrar. Þá geta nú meira segja spældir íbúarFort William prísað sig sæla.

3 Comments:
Þetta breytir öllu fyrir mig að vita :) Hugsa til ykkar elsku frænka og fjölskylda. Rannsa
he he he
Vid vissum thad og hofdum thig reyndar serstaklega i huga thegar thessi speki var skrifud,
Bergur
Skrifa ummæli
<< Home