Halloween - Vikuyfirlit nr. 2
Jæja þá er komið að vikuyfirliti nr. 2.
Þessi vika hefur fyrst og fremst einkennst af Halloween hrekkjarvöku sem hófst síðasta mánudag. Þegar maður á börn kemst maður víst ekki hjá að upplifa þetta allt saman. Það skal reyndar viðurkennast að við kunnum ekki alveg á þetta til að byrja með en vorum fljót að læra. Kl 19:00 á mánudagskvöldið kvöldið hringdu nokkrir krakkar á bjöllunni hjá okkur of báðu um “trick eða tread”. Við ákváðum að gefa þeim “tread” eftir að hafa leitað í öllum skápum að einvherjum sætindum sem við svo loks fundum á bak við núðlusúpurnar. Þetta varð til þess að við (ég og strákarnir) komust í hrekkjarvökustemningu og vildum fara út að “trick og tread-a” en vissum samt ekki alveg hvort við ættum að þora. Strákarnir áttu búninga því þeir áttu að mæta á Halloween diskótek í skólanum sínum daginn eftir og eftir að hafa hringt í Rögnu til að fullvissa mig að þetta væri nú allt saman í lagi skelltu strákanir sér í búninga og við örkuðum á stað um hverfið okkar.

Þar var auðvitað að finna fullt af börnum í búningum. Við gengum á flest hús í götunni okkar og þetta gekk nú líka svona ljómandi vel. Strákarnir kúfylltu 2 poka eins og sést á eftirfarandi mynd. En þannig virkar þetta að ef fólk segir “tread” fengu strákarnir strax sælgæti en sagt var “trick” söng Benedikt eftirfarandi vísu:
Trick or tread
Trick or tread
Give me something nice to eat
If you wont
I don´t care
I´ll just pull down your underware
Og Alexander sagði síðan gátu sem var á eftirfarandi hátt:

What has eyes, a nose and a mouth but no toungue : a pumkin
Þetta þótti öllum voða sniðugt og fengu þeir fengu drengir ennþá meira sælgæti sem við situm ennþá uppi með.

Næsta dag var síðan mikið dansiball í skólanum hjá strákunum þar sem allir mættu í “scary costumes” og úr varð vægast sagt mikil gleði og þurfti ég standa með báða fingur í eyrunum svo ég myndi ekki verða fyrir varanlegum heyrnarskaða (er ekki að ýkja).
Eftir öll hrekkjarvökuævintýri fór allt í sama farveg hjá fjölskyldunni á Don Street. Allir í skólann smáir og stórir þar til kom að kærkominni helgi. Á föstudaginn elduðum góðan mat og öll fjölskyldan horði á About a Boy (æðisleg mynd) en á laugardaginn var mikill dagur hjá Alexander sem fór í beltapróf í Taekwon do. Þetta tók heilann dag.
Fyrst voru æfingabúðir kl 9:00 um morguninn til 12:30 en eftir það tók við próf til kl. 15:00. Það er sem sagt ekkert grín að æfa þessa íþrótt. Nú auðvitað stóðst barnið prófið og var að vonum mjög stoltur. Alexander er síðan að fara næstu helgi í Taekwon Do æfingabúðir og mun æfa þar með “Master B Sahota (kóreanskur Taekwon Do meistari sem er að koma að heimsækja félagið og þetta er víst mikill heiður að sögn Alexanders). Master B Sahota æfði sem sagt hjá þeim sem stofnaði íþróttina á sínum tíma og er Alaxanders auðvitað mjög spenntur yfir því. Já og síðan má nú ekki gleyma því að litla barnið mitt sem er ekki lengur litla barnið mitt er að verða 11 ára næsta fimmtudag. Ef að maður er ekki að verða gamall þá veit ég ekki hvað.
Á laugardagskvöldið skruppum við Bergur síðan á bjórfestival sem var yfir helgina hér í borg með vinafólki okkar Hólmfríði og Stefáni. Eftir að hafa smakkað á nokkrum velvöldum fórum út borða og svo á svo á dansiball á “Espionage” sem er aðal danstaðurinn hér í Abbó. Veit ekki hvað skal segja um tónlistina og við gátum nú samt eitthvað dillað með unga fólkinu...segir konan sem mun eftir 3 daga eiga 11 ára barn.
Sunnudagurinn fór að mestu í leti. Fórum samt á alþjóðlegan útimarkað í miðbænum og keyptum Cidre, ost og hvítlauksbúnt af frönskum bónda.
Ætli að ég verði nú ekki að fara hætta. Þetta er kannski orðið soldið nákvæmt hjá mér.
Bið að heilsa og muna svo að skoða nýju myndirnar sem búið er að setja inn á myndasíðuna.
Rannveig

2 Comments:
Sæta frænka, gaman að fylgjast með þér og ykkur öllum. Búin að fá bónorð og gifting er 18. feb 2006. Hugsa til þín :) Rannsa
Til hamingju til hamingju til hamingju. En æðislegt....þúsund kossar og knús...
Skrifa ummæli
<< Home