fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Fróðleikshorn

Lesandi kom að máli við einn af vefstjórum þessa svæðis og þótti fróðlegt að vita hversu margir ánamaðkar eru á Íslandi.

Eftir ákafa heimildaleit um þéttleika ánamaðka í eldfjallajarðvegi komust fréttasnápar svæðisins að því að það mætti setja gróft meðaltal yfir Ísland sem 20 ánamaðkar á fermeter. Þetta er byggt á þeirri forsendu að nokkuð stór hluti af landinu er mjög frjósamur og þykkur eldfjallajarðvegur sem inniheldur oft á bilinu 40 til 60 ánamaðka á fermeter og á móti er töluvert af auðnum eru frekar óvistlegur staður fyrir ána að una sér á.

Út út þessu kemur að ánamaðkar gætu verið í kring um tvö þúsund milljarðar. Þetta er nú ansi svakaleg tala en vefstjórar hafa ekki tíma til að hugsa meira um þessa tölu þar sem við erum að fara út að borða í tilefni þess að Alexander á afmæli í dag.

nefndin

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home