Skýrsla 3
Vikan byrjaði rólega framanaf en svo var tekin örstutt pestagusa á aðfaranótt miðvikudags með tilheyrandi svefnleysi. 3 af 5 voru í veikindaleyfi þann daginn en allir orðnir hressir á fimmtudeginum sem var kannski eins gott því þá var runninn upp ellefu ára afmælisdagur Alexanders.
Hann fékk MP3 spilara og Warhammer kalla í afmælisgjöf og svo fórum við á veitingastað niðri á strönd þar sem allir á veitingastaðnum sungu afmælissönginn fyrir Alex. Ég held nú að hann hafi farið svolítið hjá sér greyið.
Á föstudaginn fórum við í smá kvöldkaffi(wiskí) hjá Agli og Rögnu sem var ágæt upphitun fyrir það sem koma skildi daginn eftir.
Ég og Alexander vöknuðum snemma í gær því ég þurfti að keyra hann á æfingu með Master Sohoto sem er voða heimsfrægur Taekwondo kall sem var kominn til að kenna eina æfingu. Alex fékk eiginhandaráritun og mynd af sér með kauða. Að lokinni maraþonæfingu fórum við heim og við rétt náðum heim fyrir afmæliskaffi við buðum 2 fjölskyldum sem við þekkjum að þiggja kaffi og meðlæti. Þetta gekk allt stórslysalaust fyrir sig, Alex hafði Heimsmetabók Guinnes og Bionicle kall út úr krafsinu (og Benedikt reyndar einn líka) og allir voru bara nokkuð sáttir.
Í dag vorum við svo vakin upp með sekkjapípublæstri og skrúðgöngu vegna þess að í dag minntust Bretar fallinna hermanna. Rannveig, Benedikt og Guðrún höfðu reyndar verið vakin í gærmorgun líka þegar æfingaskrúðganga fór fram.
Þegar við vorum búin að jafna okkur á sekkjapípunum og fá okkur morgunmat fórum við út í Seaton Park sem er risastór garður við götuna okkar til að prófa fjarstýrða flugvél sem ég keypti mér um daginn. Til að gera langa sögu stutta hafði þessi gripur frekar litla flughæfileika og virtist hafa nokkuð einbeittan brotlendingarvilja. Eftir að hafa hent vélinni upp í loftið um 5 sinnum brotnaði nefið af henni og ég gafst upp. Létum strákana fá smá útrás í garðinum og fórum svo heim þar sem Rannveig málaði Warhammer kalla og ég bútaði flugvélina í spað og bjó til kvartmílubíl úr legó með tveimur flugvélamótorum, hrikalega öflug græja en þetta virðist hafa verið frekar mikið álag á batteríin sem fylgdu með vegna þess að þau eru ónýt. En sem sagt frábær dagur.

5 Comments:
Hæ
Gaman að heyra frá þér. Já það er satt það er sko ekta Bergur.
Kv
Rannveig
Innilega ti hamingju með stóra barnið í fjölskyldunni :) gaman að fylgast með ykkur.
koss og knús
Helga frænka
Hæ Helga
Frábært að heyra í þér. Er þú ekkert með svona blogg svo ég geti fylgst með ævintýrum ykkar í Kaupmannahöfn ?
Hæ hó frænka mín er ekki með blogg en sendi mail heim einu sinni í viku hvað er mailið ykkar? sendi myndir og fréttir :)
Meilið mitt er rannveig@lbhi.is
Skrifa ummæli
<< Home