mánudagur, nóvember 21, 2005

Vikuyfirlit 4

Vikuyfirlitið átti víst að koma á “bloggið” í gær en ég þurfti víst að sinna mikilvægari störfum sem var að horfa á Nottinghill í sjónvarpinu með Hugh Grant og Julia Roberts (stelpumynd).

Lífið gengur bara sinn vanagang hér í Abbó. Vakna, borða morgunmat, fara í skólann, koma heim, elda, keyra börn á námskeið, heimavinna barna, sjónvarpsgláp hjá fullorðna fólkinu eða lesa “The Davinci Code” (eða skrifa blogg) og tölva, mála Warhammer-kalla og leika með tæknilegó hjá börnunum og svo háttatími.

Þegar kemur að helgum er miklu meira krassandi að segja frá. Öll fjölskyldan beið spennt eftir föstudeginum því þá var mikill dagur en það var frumsýningardagur hér í Aberdeen á nýju Harry Potter myndinni. Við vorum öll mjög spennt því við höfum verið að lesa saman Harry Potter bókina sem myndin fjallar um. Þannig að um leið og vinnudagurinn var búinn var Aleaxnder skutlað á æfingu. Eftir æfingu hjá honum var skundað á hollustu staðinn “Mc Donalds” þar sem nokkrum borgurum var reynt ljúflega með sykurdrykknum sívinsæla, kókakóla. Nú þaðan var farið beint í bíó (höfðum keypt miðana með vikufyrirvara) þar sem keypt var popp handa strákunum og Guðrúnu (au-pair) og Haagen Dasz ís handa mömmunni því mér finnst hann vera besti ís í heimi.
Nú myndin var auðvitað frábær en Alex fannst vera of mikið sleppt úr bókinni. Ég hafði hins vegar enga skoðun á því. Það er aldrei hægt að koma heilli bók í 2 ½ tíma mynd.

Á laugardagskvöldið fékk ég Guðrúnu til að passa krakkaskarann (Alex, Benedikt, Einar og Eydís) hjá Agli og Rögnu svo við gætum farið 4 út að borða. Það er allt svo miklu ódýrara hér í Skotlandi að maður er farinn að lifa hálfgjörðu kóngalífi, út að borða að minnsta kosti einu sinni viku…það er nú munur að vera íslenskur stúdent í útlöndum á spena hjá ríkinu, he he he.

Nú nú. Við fórum á grískann veitingastað sem var alveg frábær. Þjónarnir voru svo hressir og skemmtilegir að það hálfa væri nóg. Þeir fengu stóran hluta af matargestum til að stíga dans undir handleiðslu þeirra við suðræna tóna og tóku ekki mál ef matargestir kláruðu ekki matinn sem var búið að matreiða ofan í þá. Það var gæsapartý á næsta borði og það þurfti sko ekkert að dekstra þær til á dansgólfinu. Eftir veitingastaðinn fórum við á “Prince of Whales” pöbbinn og fengum okkar 2 pintur fyrir svefninn. Vorum kominn í háttinn kl. 1:30. Svona á maður náttúrulega að gera þetta en ekki vera alltaf á þessu skralli langt fram á nótt eins og á Íslandi. Byrja snemma og hætta snemma, það er málið.

Talandi um gæsapartý. Rannveig, er ekki bara málið að halda gæsapartýið þitt hér í Abbó. Bara svona til að vera viss um að ég missi nú ekki af neinu…

Því miður tókum við engar myndir þessa viku þannig að það er ekki komið neitt nýtt inn á “myndalinkinn”. Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili og vona að allir hafi það gott.

Kv Rannveig og co (eða kannski bara Rannveig GROUP eins og er svo móðins að kalla sig á Íslandi)

5 Comments:

Blogger Maggi og Rannveig said...

Það er frábær hugmynd .... með gæsapartý ég ætla að leggja þetta undir stelpurnar. Hver vill ekki skjótast til Abbó :)

1:56 e.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Ég segi það. Abbó er náttúrulega algjör "Mega City".

hi hi hi

2:40 e.h.  
Blogger Maggi og Rannveig said...

Þú ert ansi snemma í jólapökkunum í ár .... það kom jólasending til okkar í gær :) Það þýðir væntanlega að þið ætlið að vera í Abbó um jólin :) Hugsa til ykkar ... Rannsa frænka

10:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

jæja er ekki kominn tími á vikuyfirlit 5??????

8:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jú, það kemur þegar við erum búin að horfa á ameríska sækópata frá texas í sjónvarpinu

9:10 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home