föstudagur, mars 31, 2006

mánaðaruppgjör

Það er búið að vera nóg að gera hjá famelíunni undanfarna daga, hjónin búin að fara á námskeið á Black Isle þar sem Skotum datt einhvern tíma í hug að byggja álver sem átti að bjarga landsbyggðinni en var á endanum lokað eftir nokkur ár eftir að nánast hver einasta hræða var flutt af svæðinu. Námskeiðin voru haldin í tilraunastöð háskólans í litlum bæ sem heitir Cromarty en hann er alveg við Black Isle brewery sem sumir lesendur ættu að muna eftir af góðu einu.
Þarna skoða vísindamenn bottle neck höfrunga og fleiri skepnur sem þrífast ekki nema að litlu leiti annars staðar en við Moray Firth sem er fjörðurinn utan við Inverness.
Svo erum við bæði búin að halda fyrirlestur í deildinni og það var svona smá taugastríð svo ekki sé meira sagt, en allt fór sem sagt vel á endanum og að öðru leiti erum við bara búin að vinna eins og brjálæðingar inni á labbi.

En nóg af gamla fólkinu,
Alexander fór sem sagt að keppa þar síðustu helgi á opna skoska meistaramótinu í Tae kwon do og til að gera langa sögu stutta gerði hann sér lítið fyrir og náði sér í silvur í "Sparring" en það er sá hluti íþróttarinnar sem þáttakendur slást eins og hundar undir eftirliti 5 dómara.




























Beðið með eftirvæntingu eftir að fá að berja mann og annan.


Þetta var heljarmikið mót og stóð yfir allan laugardaginn en það var eins gott að það var kaffitería í íþróttahúsinu þar við gátum keypt chips with salt and vinegar, súkkulaði, kók og kakó þannig að enginn varð svangur.






























Alexander að "buffa" heimamenn



Að loknum erfiðum degi með peninginn og þjálfaranum sínum, Mr. Murdoch

Nú það voru víst einhverjir íslenskir áhorfendur í salnum ánægðir með sinn mann en í gleðivímu láðist ljósmyndara vefsíðunnar að halda myndavélinni stöðugri og náðist því aðeins ein sæmilega sómasamleg mynd af stuðningsmönnum:



Um síðustu helgi fórum við í skógargöngu í Kirkhill forest. Í skógum er hægt að finna spýtur eins og flestir vita og nýta strákarnir sér þann möguleika ávallt þegar þeir eru þar á ferð og það lýtur út fyrir að við munum hafa eldivið þangað til strákarnir verða sjötugir ef þeir halda áfram að bera "sverð" og önnur vopn í búið.














Ennfremur vita sumir að við erfiðisvinnu í skógum þarf að næra sig og það vita strákarnir betur en flestir, því fengum við okkur snakk á skoska vísu, kakó á íslenska vísu og þrjá banana á Benedíska vísu.























6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ
Til hamingju Alex, stórglæsilegt, silfur í barsmíðum undir eftirliti ekki slæmt :) Allt fínt að frétta frá danaveldi, kaffihús bæjarins farin að setja stóla og borð út og það er bara tákn um að sumarið er að nálgast:) er að reyna að setja videoin úr sveitaferðinni inná tölvuna vona að það gangi sem fyrst:) knús og kossar frá köben
Hildur

12:39 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst endilega eins og þetta hafi verið Black Isle "Distillery" en ekki Brewery ;)

kv Stebbi

1:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju frændi! Ég er ekkert smá stolt.
Hér á Íslandi var -6 í morgun en sól og fínt. Alltaf svo gaman að kíkja hingað inn. Hafið það gott sæta fjölskylda. Mása

10:57 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir að koma með þetta upp á yfirborðið Stefán. Ég var búinn að gleyma þessu. En mér þykir vont að heyra að þið séuð sokkin í snakk með salt og vinegar.

Jóhann Örn

4:38 e.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Þetta er nú reyndar lamb and mint en Alexander er nú reyndar sá eini sem lætur salt and vinegar inn fyrir sínar varir og nýtur þess, aðrir er bara svona "social" án þess að finnast þetta neitt voðalega gott,
Bergur

10:15 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1247 þar sem þið búið nú einu sinni í scotland :)
Hildur

9:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home