sunnudagur, mars 12, 2006

af enn meiri vetri og vonskuveðrum

Fleiri myndir eru á myndasíðunni.

Man ekki hvort ég var búinn að segja það en skotar eru búnir að gleyma að þeir búi á norðurslóðum og þegar veturinn var búinn að læsa klónum sínum utan um norður Skotland lamaðist þjóðfélagið á endanum, yfir 100 þúsund gríslingar í fríi í skólanum og allir fastir. Nokkrir skólar voru búnir að vera lokaðir frá því á miðvikudag en strákarnir fengu ekki frí fyrr en á föstudeginum, ég held að þrumur og eldingar ofan á allt saman hafi gert útslagið og síðustu skólarnir ákveðið að loka þá. Fólk notaði þetta að sjálfsögðu sem afsökun hvort sem það væri barnafólk eða ekki og háskólinn var hálftómur.



Við skruppum í klámbúlluna á horninu hjá okkur og keyptum snjóþotu fyrir strákana og fórum út að leika. Það er reyndar svoleiðis hérna að börn mynda minnihluta þeirra sem renna sér og oftast eru þetta háskólastúdentar með fullt af bjór og þeir renna sér mest á matarbökkum sem þeir fá "lánaða" á heimavistinni.

Benedikt fór í sleepover um daginn hjá Eydísi og þau fóru svo á hestbak í Hazelhead park.


Nú veturinn leið hjá og var svona næstum því formlega lokið á mánudaginn og skólastarf hófst aftur að venju. Síðan kom bréf á miðvikudaginn frá skólastjóranum þar sem tilkynnt var að dinner ladies og skúringakonur hér í Aberdeen væru að fara í verkfall á daginn eftir. Það er víst ekki hægt að láta börnin læra í óræstu umhverfi þannig að aftur var frí á föstudaginn

Fjöldamótmæli við skóla strákanna á fimmtudaginn var. Ekki þurfti að kalla til óreirðalögreglu í þetta skiptið enda bara ein "dinner lady" og einn ræstitæknir í mótmælastöðu.

....................................................................................................................................................................................................úff hér er skítkalt, veturinn byrjaði aftur í nótt, þurfti að taka pásu til að kveikja upp í arninum. Núna er slydda og ógeð úti, með nokkura cm klakaslabbhröngli og í Glasgow er flugvöllurinn lokaður, þar snjóaði yfir 20 cm í nótt.

Ef þetta heldur svona áfram má alveg eins búast við einhverjum lokunum á morgun, kannski þó ekki inni í borginni strax en sjáum til.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ja her snjoadi daldid i gaer 20 cm snjor i allri borginni en hann er alveg ad verda bradnadur i dag. Forum ut og skelltum nokkrum englum i snjoinn. Vona svo sannarlega ad verdrid fari ad batna. kv fra Glasgow

2:26 e.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Gott að þið skylduð ná að skella nokkrum englum í snjóinn :D hér er líka allur snjór farin.

kv frá Abbó

p.s annars þurfum við skreppa til Glasgow næstu helgi því Alex er að fara að keppa. Það getur vel verið að við fáum að heilsa aðeins upp á ykkur ef þið eruð ekki upptekin.

5:02 e.h.  
Blogger Bergrun said...

Ja það er nú nokkur munur á mótmælum hjá ykkur og svo hér í France! Hér er búið að hlaða upp alskonar drasli fyrir innganga í skólana og bara fjör í gangi.

9:56 e.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Svona á þetta náttúrulega vera. Þyrfti eiginlega að taka Skotana í smá kennslu.

kv

Rannveig

12:45 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home