mánudagur, febrúar 06, 2006

Upphaf febrúar (I hluti)

Nú er jólastirðleikinn farin úr fingrunum og loksins hægt að byrja skrifa aftur.

Hitt og þetta hefur drifið á daga fjölskyldunnar síðan síðast.
Reynum að gera þetta í réttri tímaröð:

Í lok janúar fóru hjónin á Burns night þar sem haggis og whiský er borðað ásamt rófustöppu, kartöflum og whiskýsósu.
Ég er nú ekki með þetta alveg á hreinu en sagan er nokkurn vegin þannig að eitt frægasta skáld skota, Richard Burns, bóndi sunnan úr krummaskuðinu Ayrshire (segja Aberdonians) orti óð til haggisins sem hélt lífinu í almúganum fyrir u.þ.b. 200 árum. Síðan þá er hefð að "Pipe in the Haggis", éta og leysa upp mörinn með whiskýi. Það er skemmst frá því að segja að haggis er alveg hreint frábær fæða og munum við hugsa um það með söknuði í hvert sinn sem við borðum slátur það sem eftir er lifað svo ekki sé meira sagt.



Bergur fór í klifur um þarsíðustu helgi uppi í Cairngorms. Þetta átti að vera ísklifur en varð svona vetrarklifur í staðinn þar sem það var frekar lítið um ísfossa og fleira slíkt sem ísklifrarar vilja víst vera í.
Við fórum fyrst upp sprunguna fyrir miðri mynd og svo annað klifur sem var svolítið styttra



En nú er bloggið allt komið í einhverja vitleysu og það þarf að byrja á nýju til að halda sæmilegu "lúkki".

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home