mánudagur, febrúar 06, 2006

Byrjun febrúar (II hluti)

Hildur systir kom svo í heimsókn í síðustu viku.
Það var náttúrulega ekki að spyrja að því, það eina sem hún vildi gera var að skoða whiskýverksmiðju. Nú það var orðið við ósk hennar og við fórum í Glenfiddich í skoðunarferð.

Rannveig og Hildur að skoða gambrann.

Við náðum ekki að telja alla tankana en þeir voru margir og það er nóg af gambra sem fer í gegn þarna, gerjunin tekur átta daga áður en vökvinn er tvíeimaður í þessum eimingarkötlum sem þykja litlir, fyrri eiming fer fram í 9 þús lítra kötlum og seinni eiming í 4500 lítra kötlum.

þegar þessu er lokið er er 70% víninu hellt í tunnur og á 12 árum tapast 4 lítrar af hreinum vínanda. Þetta tap er kallað "angel's share".



Síðan fórum við í heljarmikla fjallgöngu. Klæddum okkur upp í okkar bestu útivistarföt, sléttbotna strigaskó, gallabuxur, húfur og vettlinga. Förinni var heitið upp á Cairngorm (blá fjallið) sem Bergur hafði verið að druslast upp á helgina áður.

Í þetta skiptið vorum við samt sniðug og tókum bara lestina upp á topp. Ferðin tók sjö mínútur í stað 4 klukkutíma sem það hafði tekið Berg.

Þegar upp var komið þótti við hæfi að fá sér meira haggis sem og Bergur og Hildur gerðu en Benedikt fékk sér hefðbundna skoska skólamötuneytismáltíð, bakaðar baunir, pulsur, hrísgrjón og franskar.


Þetta leit nú ekki fyrir að vara mikil útsýnisferð þannig að ég tók bara mynd af ljósmynd af útsýninu


en þetta er eins og á Klakanum, hér breytast aðstæður mjög hratt og við fengum nokkuð gott útsýni yfir stóran hluta hálandanna rétt áður en við fórum niður


Við fórum svo á alveg frábært þorrablót hjá Agli og Rögnu. Þarna var ýmislegt sem hugurinn girnist og er nokkuð ljóst að við þurfum ekki að fá íslenska skammtinn aftur á næstunni, þau voru meira að segja búin að baka rúgbrauð. Nú er bara að reyna að toppa þau og stela saltpétri á labbinu og leggja í saltkjöt fyrir sprengidaginn.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

fjúkk, ég hélt að þið væruð dauð þarna í skotlandinu góða

8:48 f.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Nei nei, erum í fullu fjöri enda komu 2 blogg í einu. Eru ekki allir örugglega búin að taka eftir því ! Byrjun febrúar fyrsti og annar hluti ???

1:23 e.h.  
Blogger Maggi og Rannveig said...

Je.... ég hlakka til að sjá þig frænka mín bráðum. Hvenær kemur þú annars? Luv Frænka

8:55 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home