þriðjudagur, febrúar 28, 2006

af vetri og vonskuveðrum

Skotland kann líka að búa til vetur og hefur ritsímasamband legið niðri að nokkru leiti vegna þess og ekkert blogg komið nýlega. Af sömu sökum eru allar myndir bara á myndasíðunni (webshots.blablabla)
Nú, gömlu hjónin fóru í fjallgöngur á meðan strákarnir voru með Helgu ömmu sinni í helgarfríi um að ég held þar síðustu helgi. Fyrri daginn gengum við á fjall sem nefnt er Morven (Big Hill), sem er eiginlega austasti stóri fjallstoppur Cairngorm fjalla. Þetta byrjaði í hæglætisveðri en í 700 metra hæð varð algjörlega vitlaust veður en við höfðum það af að fá okkur cup of tea og gúrkusamloku uppi á toppi. Á niðurleið gengum við svo niður í góða veðrið undir 700 metrum. Veðraskilin sjást ágætlega á myndunum (sérstaklega á myndinni sem er tekin af útsýnisstað drottningar sem hún notar þegar hún heimsækir skírið og athugar hvort almúginn hagi sér ekki).

Daginn var veðrinu búið að slota (eða þá að fjallið var lægra en 700 metrar) en þá gengum við upp á Bennachie (Hill of the pap) sem er hérna rétt fyrir utan Aberdeen. Þetta var svona létt skemmtiganga með tilheyrandi tedrykkju uppi á toppi.

Svo er nú bara ekkert mikið búið að vera að gerast hér, tennurnar hrynja úr Alexander og nýjar vaxa jafnóðum, ég hefði ekki trúað því að þetta gæti gerst svona hratt, barnið hlýtur að vera með vaxtaverki í kjálkunum. Á morgun verður komið heim með sýru til að leysa upp tönnina. Þá kemur í ljós hvað skorufyllingar eru sterkar.

Í gær byrjaði að snjóa hér og er búið að snjóa töluvert síðan, allt á kafi í skírinu en í borginni er ekkert mikill snjór. Krakkarnir fengu ekki að fara út í dag í frímínútum vegna hættu á og mikilli skemmtun (þetta var sem sagt einn af þeim dögum sem Alexander segir að nú sé kominn tími til að flytja til Íslands) en strákarnir nýttu snjóinn óspart þegar heim var komið.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Kemur tannálfurinn ekki til Aberdeen??

8:22 f.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Held ekki, hann er að minnsta kosti ekki enn kominn, enda vonskuveður og flestir skóla og vinnustaðir lokaðir hér Aberdeen. Verð að nú sagja, þetta er nú soldið kósí

Kv

Rannveig

10:01 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Snemma beygist krókurinn, ég sé að hjá ykkur er að vaxa upp næsta kynslóð jarðvegsfræðinga.

Jónatan sendi mér slóðina, gott og gaman að frétta af ykkur, kærar kveðjur héðan úr snjólausa landinu, gangi ykkur vel.

HB

11:17 f.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Hæ Hólmgeir og gaman að heyra frá þér. Já já mikið rétt, við Bergur höfum tekið að okkur að rækta jarðvegsfræðinga enda talið afbragðs fólk upp til hópa :D

Kv

Rannveig

2:43 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home