Vikuyfirlit 5
Jæja,
þá koma einhverjar fréttir í seinna fallinu. Myndir koma á morgun.
Hér er búið að vera svo kalt að þetta er eiginlega alveg glatað. Í síðustu viku voru yfir 100 skólar lokaðir í skírinu en Aberdeen slapp að mestu leiti. Það var líka alveg brjálæðislega mikið að gera hjá gasviðgerðaköllum hér í borg því í vikunni byrjuðu Skotar að fýra upp í kyndingunni og þegar maður er ekki búinn að nota kerfið sitt síðan í janúar vilja hlutir bila. Við Íslendingarnir hér í borg áttum ekki við þessi vandræði að stríða vegna þess að við erum víst umhverfissóðar og kyndum híbýli okkar daglega til að þurfa ekki að ganga um í Yeti-stígvélum inni eins og skosku stelpurnar.
Síðasta miðvukudag skruppum við til Glasgow eftir skóla hjá strákunum og fórum á tónleika með Franz Ferdinand. Þetta voru hörkutónleikar enda hljómsveitin á heimavelli. Þeir spiluðu alla slagarana og ég hélt stundum að þakið ætlaði af í fagnaðarlátum. Við skemmtum okkur voða vel og Alex og mamman dönsuðu helling í stúkunni en Benedikt var orðinn frekar slompaður þegar leið á kvöldið en hafði samt mjög gaman að. Við keyrðum svo heim aftur um kvöldið til að komast í skóla og vinnu daginn eftir.
Um helgina fór Guðrún til Íslands og skilaði af sér fyrsta skammti af jólagjöfum frá okkur og í tilefni þess að við vorum búin að losa okkur við einhverja pakka fórum við í bæinn á Laugardaginn v.þ.a. Benedikt var búinn að panta jólaskraut. Í bænum var styrjaldarástand og manni leið eins og á Þorláksmessu á Laugarveginum en svo föttuðum þegar heim var komið að þetta var nú bara fyrsta aðventuhelgin þannig að ætli við slökum ekki á í jólaundirbúningi svona næstu þrjár til fjórar vikurnar. Um kvöldið fórum við svo í matarboð til vinafólks okkar Hólmfríðar og Stefáns og borðuðum Angusnaut. Fullorðna fólkið skrapp svo aðeins niður í bæ og við skildum strákana eftir hjá þeim þar sem þau eru líka með Au-pair fyrir sína skæruliða.
Nú, við fórum svo í gær og skoðuðum aðra íbúð og fórum svo í morgun og sóttum um hana. Til að gera langa sögu stutta erum við búin að fá hana og flytjum inn þar þann 20. des ef allt gengur að óskum. Þessi íbúð er í gömlu graníthúsi (einu af nokkrum hér í bæ), hátt til lofts, alvöru arinn, stór herbergi og allur pakkinn en samt ódýrari heldur en það sem við erum í í dag þannig að við erum bara mjög ánægð með þetta. Það hlýtur reyndar að vera eitthvað catch við þetta og ég held helst að það búi axarmorðingi í skúrnum úti í garði sem fylgir með íbúðinni.
Rannveig hélt svo fyrirlestur í grúbbunni sinni um allt sem viðkemur íslenskum jarðvegi þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvað það hefur verið áhugavert. En það gekk sem sagt vel og næsti fyrirlestur ekki fyrr en í mars hjá okkur báðum.
Strákarnir kláruðu svo sundnámskeið sem þeir eru búnir að vera á í vikunni og þetta voru sko alvöru barnapíningar, námskeiðið endaði með flugsundi en það er eitt af þessum athöfnun mannana sem lætur mig helst líkjast sandpoka í vatni.
Benedikt er svo byrjaður í söngkennslu þar sem krakkarnir er látnir syngja popplög og þess háttar þannig að þetta er dálítið öðruvísi en kórinn í Álftanesskóla. Hann er sem sagt alsæll og ætlar "pottþétt" að halda áfram.
Fróðleikshorn fylgir kannski á eftir en kemur kannski á morgun,
Bergur

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home