mánudagur, desember 12, 2005

Vikuyfirlit

Jæja, þá er enn ein vikan liðin og allt að verða vitlaust í Skotlandi. (Hægt er að smella á myndirnar til að fá stærri útgáfu á skjáinn.) Við erum orðin svo stressuð út af jólunum að við erum farin að missa svefn á nóttunni. Rannveig er búin að baka átján sortir af smákökum og ég er búinn að pússa allt silfrið. Strákarnir eru búnir að eyða síðustu þremur vikum í að búa til músastiga og við erum komin með tveggja metra hátt jólatré í stigann hjá okkur. Það lýtur nefnilega út fyrir að maður eigi að taka jólunum mjög alvarlega hér enda allir búnir að setja upp jólatréin hér í borg.

Árunum er búið að fjölga um eitt og að þessu sinni var það Benedikt sem varð átta ára í gær. Við byrjuðum daginn á að vekja hann með gjöfum og söngHann vaknaði á endanum (að hans sögn, hann var reyndar búinn að vera vakandi frá því fyrir sólarupprás) og þegar hann var búinn að skoða gjafirnar aðeins
fengum við okkur skoskan morgunmat til að hafa orku fyrir daginn.

Eins og alþjóð veit hafa bakaðar baunir í í tómatsósu töframátt og vorum við því til í slaginn.
Benedikt er hér fyrir framan háskólajólatréð sem er í leiðinni frá okkur niður í bæ:
Eitthvað fóru baunirnar misvel í fólk og Alexander þurfti aðeins að leyfa þessu að settlast áður en lengra var haldið:
Benedikt varð nú samt dálítið svangur á leiðinni niðrí bæ en sættist á að vera bara þyrstur og ákveðið var að stoppa í fyrstu búð sem á vegi okkar yrði. Benedikt spurði þá hvort ég ætlaði að kaup vatn í "svona búð þar sem konurnar í blöðunum eru búnar að fara fara úr brjóstahöldurunum" en þetta er víst ágæt lýsing á meirihluta verslana hérna. Kaupmenn á horninu skipta oftast búðum sínum í: 40% klámblöð; 40% áfengi; 15% nammi; 4.9% tilbúnir réttir og 0.1% mjólk og brauð o.þ.h.

Við fórum á Pizza Hut niðri í bæ og héldum pizzupartí og tæmdum svona eins og einn kút af gosi þannig að allir voru vel hressir.














Bergur nýbúinn að drepa annan mann, í þetta sinn með lánstóli frá Pizza hött:



Eldsnemma á laugardagsmorgun lögðum við í reisu til Peterhead sem er næsti stóri bær fyrir norðan Aberdeen þar sem Alexander fór í enn einar barnapíningarnar, löng æfing fyrir hádegi og svo beltapróf í Tae kwon do. Þetta var greinilega ferð til fjár því Alexander fór svo aftur á æfingu í dag með nýtt belti. Þá eru það bara blá rönd, bláa beltið, rauð rönd, rauða beltið, hvít rönd, önnur hvít rönd og svört rönd í svarta beltið, semsagt bara alveg á næsta leyti.


Í dag fórum við svo á jólaleikrit hjá strákunum. Þetta var hefðbundin uppfærsla á Skrooge en þeir náðu að koma öllum nemendum í P4 til P7 í leikritið en það verður að geta þess að nemendur fóru með misstór hlutverk. Strákarnir voru í sitthvoru atriðinu og sungu eitt lag hver í slagtogi við sinn bekk. Glöggir lesendur sjá ef til vill að Alexander hefur sjaldan skemmt sér jafn konunglega og þegar hann söng slagarann "Consider yourself".

3 Comments:

Blogger Maggi og Rannveig said...

Til hamingju með afmælið sæti frændi .... Kveðja, Rannsa frænka

10:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið Benedikt, vá átta ára......er mamma litla að verða stór eða?....:@
Kveðja frá Guðrúnu og Ragnheiði.

9:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Lurpak á borðum? Hvernig ratar það í innkaupakörfu yfirlýsts andstæðings danaveldis?

Hilsen,
A

11:17 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home