þriðjudagur, desember 06, 2005

Fróðleikshorn

Leiðindapúki kom að máli við einn ritstjórnarmeðlima og hafði á orði að Íslendingar væru eins og snýkjudýr hér í Aberdeen, við borgum engan Council tax, erum á niðurgreiddum skólagjöldum, borgum skattana okkar heima o.sv. frv. blablabla.

Í tilefni þess var haldinn fundur á ritsjórn og ákveðið að taka aðeins fyrir þessa tegund lífvera og annara skyldra og starfsemi þeirra.

Gera má ráð fyrir að snýkjudýrið Plasmodium sem berst með moskítóflugum hafi valdið um helmingi allra dauðsfalla í heiminum ef frá eru talin stríð og stórslys.

Svo var það bakterían í ónýta matnum. Hún gefur frá sér eitur sem er eitraðara en striknín, arsen og úr eitur úr eitruðustu snákum. Fræðilega þarf 450 grömm af þessu eitri til að þurrka út mannkynið á heilu bretti en ætli sé ekki álíka erfitt að verða sér út um það eins og arsenið á íslandi sem nota mætti til að þurrka út danska kynstofninn.

Svo eru líka sum kvikindi sem geta lifað við ansi speisaðar aðstæður. Cyanidium caldarum bakterían á til dæmis heima í virkum eldgígum og hefur það bara fínt í vatni með pH 0. Vinur hennar, Deinoccucus radiodurans þolir 6.5 milljón röntgena geislun (ritstjórn hefur ekki tileinkað sér SI-einingar þrátt fyrir að vera í doktorsnámi) sem er 10.000 falt meiri geislun en við mennirnir þola.

Bestu kveðjur

Rannveig og Bergur

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæl veriði, gaman að fylgjast með ykkur og fá allan þennan fróðleik.

Rakst á eina síðu sem gæti hjálpað ykkur með SI kerfið

http://physics.nist.gov/cuu/Units/

kveðja Stebbi

8:46 f.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

He he he

Kærar þakkir fyrir það. Þá getum við Bergur loksins "update-að" okkur.

9:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hæ hæ
vildi bara láta vita að ég fylgist með :)

10:33 e.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Gott að vita það.

Kv

Rannveig

8:05 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Eftir lestur þessarar vinnuhandbókar er bara spurning um að hætta alveg að eta: http://www.ust.is/media/ljosmyndir/matvaeli/vinnuhandbok.pdf

Kv.,

Rikki

4:15 e.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Já það borgar sig að hafa varann á þegar náttúran er annars vegar.

Kv

Rannveig

11:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home