Vikuyfirlit 6
Ekkert markvert gerðist í vikunni sem við munum eftir en ég ætla samt að skrifa eitthvað í tilefni þess að tölvan er komin í gang.
Af strákunum er það að frétta að Benedikt er byrjaður að borða aftur á við krókódíl eftir að hafa verið frekar slappur í átinu nýlega. Alexander æfir hart í undirbúningi fyrir græna beltið í Tae kwon do. Benedikt heldur svo áfram á söngnámskeiðinu sínu á meðan Alexander stúderar Warhammer fræðin á fullu.
Gömlu hjónin fóru á námskeið um meðferð geislavirkra efna og komumst að því að Aberdeen er sú borg í Bretlandi sem hefur hæsta bakgrunnsgeislun og það er aðallega út af radon afgösun úr granítinu í húsunum. Þetta er sérstaklega uppörvandi þar sem við erum að fara að flytja í graníthús eftir 3 vikur. Ætli við komum ekki öll heim með 11 fingur á næsta ári.
Svo fórum við út að borða í gær á spænskum veitingastað og fengum alveg frábæran mat. Fórum svo á standup comedians og fengum smá "shock treatment". Mjög skemmtilegt kvöld.
Bergur og Rannveig

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home