Fróðleikshorn
Áður en lengra er haldið er rétt að minna á að glænýtt vikuyfirlit er fyrir neðan fróðleikshornið.
Þar sem fróðleiksmolar úr ríki náttúrunnar mældust misvel fyrir drógu nokkrir ritstjórnarmeðlimir sig inn í skel, lögðust undir feld með höfuðið í bleyti og létu í kjölfarið IMG-Gallup í samstarfi við NFS-fréttastofu (eða hvað það nú heitir) gera hávísindalega viðhorfskönnun og þarfagreiningu á fróðleiksþorsta lesenda vefsins.
Og þá vindum við okkur í "sagnfræðina".
Opinber skýring á dauða Elvis Presley's mun vera sú að hann hafi fengið hjartaáfall inni á baði hjá sér í Graceland þann 16. ágúst 1977.
Þetta þykir víst ekki nógu góður dauðdagi hjá kauða þannig að við ætlum að telja upp nokkrar dauðaorsakir sem velt hefur verið upp um hvernig þessi maður endaði stundir sínar í kastljósi frægðar og frama.
Á hótelum dvaldi Elvis oft undir nafninu John Burrows. Nokkrum dögum eftir að Elvis dó fréttist af manni með þetta nafn og sem líktist Elvis kaupa flugmiða til Suður Ameríku. innskot: Ritsjórn þykir þetta frekar léleg skýring.
Elvis hitti Nixon á sínum tíma og þeir voru sammála að Bítlarnir og fleiri hljómsveitir hefðu vond árhif á ungviðið í USA. Elvis bauðst því til að vera sendiboði stjórnarinnar til að breiða út fagnaðarerindið um vímulausa æsku. Elvis ku hafa boðið CIA að grafa út jörðina undir Graceland til að nota sem risaneðanjarðarfylgsni í baráttu sinni gegn eiturlyfjum. Þegar gamanið stóð sem hæst hjá CIA mun Elvis eitthvað hafa styggst og hótað að segja frá starfsemi CIA undir Graceland en hann hafi ekki áttað sig hversu harðsvíraðir svírar CIA menn voru og þeir hafi einfaldlega kálað honum. innskot: Þetta er allt farið að vera mun líklegra.
JFK var eins og sumir hafa heyrt ekki við eina fjölina felldur í kvennamálum og að honum hafi orðið nokkuð ágengt í að ná sér í þotuliðskonur. Elvis var víst ekki alveg ánægður með þennan frama JFK á þessum vettvangi og það hvað hann var almennt mikið kvennagull og hafi þess vegna látið skjóta JFK. Síðan hafi Elvis verið drepinn í hefndarskyni.
Margir halda að Kóngurinn hafi dáið úr ofneyslu eiturlyfja en faðir hans hafi fengið lækna sem úrskurðuðu hann látinn til að segja að hann hafi fengið hjartaáfall til að skemma ekki ímynd Elvis sem baráttumanns gegn fíkniefnum. innskot: Þetta er náttúrulega svo fáránleg hugmynd að hún ætti ekki einu sinni að vera talin með í þessari upptalningu.
Jæja, þessi upptalning sýnir það og sannar að sá ritstjórnarmeðlimur sem stóð á bak við þennan póst hefði greinilega átt að fara í sagnfræði en ekki að vera að eyða tímanum í að skoða hvernig náttúran hagar sér.
kveðja, Ritstjórn

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home