Þrefalt húrra fyrir drottningunni: Húrra, húrra, HÚRRA
Á föstudaginn var mikið um dýrðir í Sameinaða Konungdæminu, einvaldurinn áttræður. Hér á eftir fer brot af því besta sem gert var í tilefni dagsins.
Dagurinn hjá hennar hátign hófst á hefðbundnum göngutúr um Windsor í fylgd Philips prins meðal almúgans. Að loknum göngutúr dró hún sig í hlé í Windsor kastala, las afmæliskort (20 þús kort og 17 þús email), fékk sér konunglega gúrkusamloku og sérstaklega lagað te í tilefni dagsins.
Drottningin var hrærð yfir þeim fjölda heillaóskaskeyta sem henni bárust og í persónulegu þakkarbréfi sagði:
"I have been very touched by what you have written and would like to express my gratitude to you all from making this day such a special one for me"
Aðspurð hvers hún óskaði sér í afmælisgjöf sagði húneftir nokkra umhugsun.
"Oh, I don't think there's anything I'd like. A nice sunshiny day - that would be nice"
Á meðan drottningin hélt sér upptekinni með lestri almúgabréfa fór sonur hennar, Karl prins af Wales, með konunglegri tvíþekju til hinnar merku borgar Aberdeen í norðaustur Skotlandi. Þar opnaði hann nýuppgert Gordon highlanders safn að viðstöddu fögru föruneyti framámanna í borginni og umhverfi hennar. Eiginkona prinsins, Camilla hertogaynja af Rothesay, var ekki viðstödd þar sem hún var önnum kafin í undirbúningi kvöldverðar í Kew höll er stendur í hinum margrómuðu Kew grasagörðum. Karl staldraði stutt við í Aberdeen og flaug aftur heim í eftirmiðdaginn vegna undirbúnings kvöldverðarins.
Mikið var um dýrðir í Kew höll og 26 meðlimum fjölskyldunnar var boðið að njóta krónhjartarsteikur og meðlætis með Hennar hátign og ektamanni hennar hertoganum af Edinburgh.
Prinsinn af Wales og spúsa hans, Hertogaynjan af Rothesay voru gestgjafar kvöldsins.
Á gestalista voru eftirfarandi:
Hertogaynjan af Cornwall, William og Harry prinsar, hertoginn af York og dætur hans Eugenie prinsessa og Beatrice prinsessa.
Ennfremur var jarlinum og jarlynju? af Wessex boðið, Royal prinsessu og ektamanni hennar afturaðmíráli (Rear Admiral) Tim Laurence, Pétri og Zöru Phillips (almúgafólk?, nei varla), hertoganum og hertogaynjunni af Glaucesster, hertoganum og hertogaynjunni af Kent, Prinsinum og Mikjáls prinsessu af Kent og Alexöndru prinsessu.
Að lokum var Linley greifa og greifynju og Lafði Söru Chatto og Daniel Chatto boðið. Börnum Margrétar Prinsessu og spúsum þeirra var einnig boðið.
Þýtt (að mestu) og staðfært úr hinu virta fréttablaði, Evening Express.

5 Comments:
Til hamingju með Drottninguna. Ferlega hebbði ég verið til í að taka þátt í hátíðahöldunum í Kew. Ég er nebbla mikill aðdáandi Kew gardens.
Any ways, er búin að koma mér vel fyrir í Köben og gæti tekið við heilu fjölskyldunum í heimsókn ;-)
Sæll Brúsi frændi.
Ég ætlaði að að senda ykkur póst en það er ekkert netfang að finna á bloggsíðunni ykkar. Viltu senda mér e-ð á sighvatur@vgk.is
Bibbs
Elín Elín, Elín, mikið var að beljan bar og kálfurinn datt í flórinn segi ég nú bara. Hélt að þú værir löngu týnd og tröllum gefin. Mikið er ég nú glöð að svo er ekki og það er mjög svo mikið gaman að heyra frá þér.
Rannsa pannsa
Hva, maður fer nú ekki að gefa sig tröllunum ;-)
Ertu enn með vinnutölvupóstinn? Ég prófa að skrifa þér við fyrsta tækifæri!
Jú er með gamla vinnupóstinn og líka r.guicharnaud@abdn.ac.uk
Skrifa ummæli
<< Home