fimmtudagur, maí 11, 2006

Lundun

Hjónin skelltu sér í páskafrí til höfuðborgar konungsveldisins, nefnilega london. Til fararinnar var var ferðast með eimreið með svefnklefum því okkur hafði verið talin trú um að með tveggja tíma flugferðalagi spýr maður jafn miklum koltvísiringsflór út í andrúmsloftið og við eðlilega árlega heimilisiðju meðaljóns á bretlandseyjum. Nú hvað um það við svona svaka umhvervisvæn og sváfum varla baun í þessu skrapatóli og vorum komin til London um átta leytið á Föstudaginn langa.

Fyrsti dagur kaupstaðarferðar fór að mestu í vitleysu á Oxford street og í nágrenni Covent Garden. Þetta er svosem ágæt iðja ef maður er í mógadonvímu eða kvenmaður en ég mæli ekkert sérstaklega með heilu dögunum á þessum slóðum, þó var hægt að fá ágætis veitingar hér og þar.

Á öðrum degi keyptum við okkur dagpassa með strætó af hollenskum þrælakaupmönnum því þennan dag átti að nota í að kynnast borginni.


Nei ég er ekki óléttur, myndin er bara tekin undir svo svakalega óþægilegu horni

Við keyrðum hring í london og fræddumst um hitt og þetta merkilegt en ég man nú ekki alveg eftir því hvað var sagt. Ferðinni var sem sagt heitið í Earth Galleries en eins og hvert mannsbarn veit nær ekki nokkurri átt að kalla söfn nú til dags Geological museum vegna þess að það er svo púkó. Þarna inni voru ýmsir dýrgripir náttúrunnar og þar af kalsíthnulli frá Helgustöðum og sérstakur veggur um mold. .. Við vorum alveg í kasti.

Eftir dágóða stund í EG eins og Skotinn myndi segja hoppuðum við aftur upp í strætó

Ferðinni var heitið niður að Big Ben & Co til að fara í bátsferð. Við röltum fyrst um svæðið og hittum þá fyrir ansi kumpánlega menn og það sem þeir höfðu fyrir stafni má skoða á eftirfarandi slóð:

http://www.youtube.com/watch?v=OSJJtFzbSgI

Þetta eru 35 Mb þannig að það er bara að ná sér í kaffisopa ef tengingin er hæg en þeir litu einhvern veginn svona út:

Að þessu sinni var tekin ákvörðun um að fara ekki upp í auga lundúna vegna anna, röðin var eflaust um fimm klukkutíma löng ég býst við að best sé að fara í augað í hávaða roki, þoku og rigningu til að minnka aðsókn.

Svo fórum við í bátsferð fulla af grenjandi krakkakróum og heyrðum ekkert hvað var verið að segja þannig að fræðsluhorn um nágrenni Thames ár verður að bíða betri tíma.

Á leiðinni upp á hótel reyndum við að heilsa upp á Bomber Tony en hann var ekki heima, við hugsuðum okkur þó gott til glóðarinnar þegar kæmi að fundum okkar og drottningar.

Rannveig utan við Downing street

Og sjá, páskadagur var notaður í enn meiri menningu og nánast ekkert búðaráp, fórum á Tate Modern og spekúleruðum í innsetningum og fleira merkilegu sem ég kann nú ekki alveg að nefna af því ég er svo mikill sveitamaður. Gerðum eitthvað aðeins meira menningarlegt en ég man ekki hvað það var v.þ.a. ég tók engar myndir eftir Tate.

Annar í páskum er líka til í London ólíkt því heiðna háskólaþorpi Aberdeen þannig að enn var töluvert af fólki í fríi. Við fórum í kínahverfið og fengum okkur gufu/djúp/sól/kryddsteikta önd og núðlur í morgunmat því við vildum ekki fara of svöng að hitta drottninguna.

Rannveig að bíða eftir öndinni góðu

Bergur búinn að borða öndina góðu og kominn með fuglaflensu

Við vorum einhverra hluta vegna haldin þeirri grillu að hún ætlaði að taka á móti okkur með Earl Grey og gúrkusamlokum í Buckingham palace en þar tóku bara á móti okkur brosmildar enskar löggur með hríðskotabyssur og góða pósu fyrir myndatöku. Ég var svo móðgaður að ég fór ekki einu sinni í röð til að láta taka mynd af mér með löggu. Rannveig var alveg miður sín en við tókum svo gleði okkar á ný því með við ákváðum að fara til Camden town og láta bjóða okkur eiturlyf. Það lýtur út fyrir að ég sé ansi krimmalegur því mér var boðið allt milli himins og jarðar eins og jafnan þegar ég er í stórum borgum. Rannveig var greinilega of sveitó því hún fékk engin gylliboð.

Þannig fór um sjóferð þá, tókum svo lestina aftur til Glasgow yfir nótt og hittum strákana á flugvellinum en þeir höfðu verið heima á Íslandi í súkkulaðirússi.

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það hefur greinilega verið mjög notó hjá ykkur hjónum í London.
Sakna þín frænks.
Knús.
Mása

11:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sömuleiðis, en nú styttist óðum í heimför. Bara sumarið eftir. Ótrúlegt hvað tímanum líður.

8:38 f.h.  
Blogger Maggi og Rannveig said...

Oh hvað það hefur verið gaman hjá ykkur ... ég hlakka til að fá þig heim í ferðalög.

Kossar
Rannsa

12:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hlakka líka til. Er sko alveg tilbúin í ferðalagapakkann og farin sakna íslenskrar náttúru þótt hér sé nóg af fallegum fjöllum "fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla"

Þetta var viskuhorn dagsins

1:46 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Flott kápa Rannveig!!!

1:05 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir, þetta er líka uppáhalds kápan mín

1:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hæ ferðalangar hvað segiði um að koma til mín í júlí :)
knús og kossar frá köben

1:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ja það gæti bara vel komið til greina.

R&B

9:58 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home