sunnudagur, júní 25, 2006

Allar myndir með þessu bloggi eru á http://community.webshots.com/user/bergurogrannveig/
Heimildamyndataka hefur ekki verið alveg samfelld á ferðalögum okkar okkar vegna rafhlöðuvandræða en myndatextinn ætta að skýra eitthvað.

Hér er búið að ganga á með heimsóknum og mannaferðum. Nýr fjölskyldumeðlimur var tekinn inn í innsta hring þegar mamma og pabbi komu í heimsókn og færðu með sér nýja vinnukonu, nefnilega Ingunni systur. Hún ætlar að vera með okkur þangað til við förum í sumarfrí. Þetta fór allt á besta veg og veðrið var að sjálfsögðu gott eins og alltaf þegar þau koma í heimsókn. Við fórum að sjálfsögðu í wiskýverksmiðju ásamt því að borða á alvöru sveitakrá. Fórum einnig í skógargöngu og gerðum sitthvað fleira okkur til dundurs. Síðan unnu hjónin í viku eða þangað til 17. júní rann upp, þá fóru flest okkar til Edinborgar á þjóðhátíðardagshátíðarhöld og pulsupartí. Á meðan við fengum okkur okkur pulsur tók Rannveig á móti ömmu sinni sem kom og var hjá okkur í viku. Svo komu Fúsi frændi Rannveigar og María kona hans á sunnudeginum og voru í tvo daga. Nú aftur var haldið af stað í wiskýverksmiðju og á skoskan sveitapöbb. Reyndum að mini eimingarketil fyrir Fúsa í bústaðinn en ekkert gekk, það verður bara að finna hann seinna. Amman fékk líka að sjá Balmoral sem er sumarafdrep kóngafjölskyldunnar þegar hún vill fá frí frá konunglegu amstri hversdagsins. Einnig fórum við á Hálandaleikana með ömmunni og horfðum á drumbakast, sekkjapípu- og danskeppnir, sjá link á vídeó hér að neðan.

http://www.youtube.com/v/k8Bsm2EORmo

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home