Auk venjulegra skildustarfa í námi og starfi hefur fjölskyldan gert sér ýmislegt til dundurs undanfarið. Við fyrsta vott af sumri fórum við á strönd norðan við bæinn sem heitir Balmedie Beach. Ætlunin var að fara í flugdrekaleik en vindurinn stóð á sér og þurfti fjölskyldufaðirinn að hlaupa um alla strönd til að halda drekanum á lofti. En það þýddi ekkert að fara í fýlu og strákarnir fundu sér sitthvað til dundurs, byggðu virki og löguðu setlögin eftir einhverja krakkaskemmdarvarga.
Daginn eftir Balmedie kom tengdamamma/mamma/amma til okkar til að vera hjá okkur í þrjár vikur. Við nýttum tímann til hins ýtrasta í tilefni þess að vera aftur komin með fullan vinnudag á meðan amman gekk um alla borg á milli þess að koma strákunum í og úr skóla. Það lýtur út fyrir að Aberdeen City council treysti henni ekki alveg til að sjá um þetta starf því á sama tíma og þetta fyrirkomulag byrðjaði kom Alexander með þessa flík heim. Eins og hefur verið minnst á áður á þessum síðum eru skotar ansi uppteknir af "Health and Safety" en hins vegar má alveg spyrja hvort það væri kannski ráð að dreyfa endurskinsmerkjum sem hægt er að setja í vasa í stað þess að láta blessuð börnin klæðast eins og götusópara.
Ýmsir í þessari fjölskyldu segja að eitt það besta við Bretlandseyjar hljóta að vera hin margrómuðu “Tea rooms” en þar er hægt að fá te og skonsur. Þessi fyrirbæri er meðal annars hægt að finna í lok skoðunarferða í köstulum. Eitt slíkt var þefað uppi í Fyvie Castle sem er hér nokkuð fyrir utan bæinn. Ekki eru til neinar góðar myndir af kastalanum en hér á eftir má sjá hvernig er umhorfs í teherbergjum þeirra skota.
Við fórum líka í ránfuglaleiðangur með snert af skordýraveiðum. Annars vegar fórum við á stað þar sem villt fálkapar hefur aðsetur og reynir að koma upp ungum. Þar vorum við hvött til að pissa í tunnu við hlið kamarsins þar sem mannahland ku vera ansi virkt í að halda fjallaköttum í skefjum en einn slíkur gerði sig heimankominn í grennd hreiðursins . Að lokinni villtri náttúrunni fórum við í svokallað fálkasetur þar sem fuglarnir eru álíka villtir og aligæsir. Þessir fuglar gera ekki nokkurn skapaðan hlut nema þeir séu svangir og þeir fái mat fyrir sinn snúð. Þetta var samt voða gaman og við gáfum þeim svona eins og 2-3 kjúlla úr lúkunum.









Annars er það að frétta af Alexander að hann er farinn að yrkja á tveimur tungum og fékk sérstaka viðurkenningu fyrir að yrkja áróðursljóð um mengunarspúandi einkabíla. Höfundar þriggja bestu ljóða úr hverjum bekk fengu formlegt heimboð í Aberdeen Environment Education Centre. Nú er hann sem sagt kominn með Græna vottun um að hann hugsi um umhverfi sitt enda hefur hann aðeins þurft að segja foreldrunum til hvernig á að haga sér í nútímaþjóðfélagi. Um daginn kom fram í blöðum að bretar borði meiri kartöfluflögur heldur en öll Vestur Evrópa samanlagt. Það er kannski ekki að undra að svo sé því þeir kunna sko að ala upp neysluna í börnunum. Í þessari virðulegu móttöku var boðið upp á samlokur og kaffi fyrir fullorðna en börnin fengu "crisps".
Hvað meir, jú fórum í sumarbústað um helgina en ég á eftir að hlaða myndunum af þeirri reisu niður á tölvuna og því verður ferðasagan að koma aðeins seinna









4 Comments:
Voðalega er þetta flottur fugla garður sem þið hafið farið í. Ég sé ásu alveg fyrir mér með svona Harry Potter uglu á hendinni. Hún er einmitt líka orðin mjög umhverfissinnuð eftir eitthvað átak í skólanum og ég er í mestu vandræðum hérna því ég hef ekki nóg pláss til að endurvinna og hafa safnhaug :S
Hvernig gekk annars á PhD stress námskeiðinu...áttu einhver góð ráð í pokahorninu?
kv
Þórdís
Svo ég leyfi mér að svara, þá er offramboð á uglum samkvæmt eiganda fuglagarðsins en eftirspurn í kjölfar Harry potter var minni en gert var ráð fyrir. Þetta veldur því að hægt er að kaupa uglu fyrir aðeins 20 pund. Hana, þá hefur þú jólagjöf handa ásu.
B
Það er greinilega bara ég sem tek regluleg móðursýkisköst yfir þessu doktorsnámi mínu, því það var hætt við kúrsinn vegna dræmrar þáttöku. Svo fékk tölvupóst í kjölfarið þar sem mér var bent á að ég gæti farið í "counceling".
Þó að maður sé svona smá stressaður öðru hverju svona aðalega út af því maður er kona og svoleiðis gera þær stundum þá þýðir það nú samt ekki að maður þurfi á sálfræðimeðferð að halda. Ó nei, var sko ekki par ánægð með þetta og varð bara ennþá grimmari en venjulega
20 pund fyrir uglu...það er bara alveg gefins!! Hún gæti búið hérna í trénu fyrir utan gluggann :D
Ég er nú alveg bit á þessu með stresskúrsinn...og er pínku reið fyrir þína hönd (kona verður nú að sýna samstöðu) Kannski er best að notast bara við "öskra í kodda" ráðið áfram
kv
Þórdís
Skrifa ummæli
<< Home