mánudagur, júlí 31, 2006

Ferð á Miðjarðarhafi














Allar myndir eru á myndasíðu:


http://community.webshots.com/user/bergurogrannveig/

Þá rættist gamall draumur hjá Benedikt. Allt frá því við horfðum dreymandi augum á arabasnekkjurnar í Cannes í fyrra hefur Benedikt oft talað um það hvað það væri gaman að fara í sjóferð. Því ákváðum við að eyða öðrum helmingi frísins okkar um borð í MS. Norska gimsteini. Þetta er svo stórt skip (300 metra langt) að það má líkja þessu við það að allir íbúar Álftaness væru gestir og aðeins fleiri en Siglfirðingar að þjóna þeim. Hér á eftir fer stutt ferðasaga en engin ábyrgð er tekin á sagnfræðilegum fullyrðingum í þessum texta og er ekki talið viturlegt að hafa eftir í samtali við fólk sem hefur eitthvað smá vit á sögu Ítalíu og Rómaveldis.

Nú hvað um það, lagt var í hann frá Barcelona og siglt í einn og hálfan dag á sjó til Sikileyjar þar sem ferðinni var heitið upp á Etnu, stærsta eldfjall Evrópu. Nú þetta var gríðarleg fjallganga enda var búið að vara hjartveikt fólk að fara ekki í þessa för. Rútan keyrði okkur upp í 2000 metra hæð og svo fórum við um borð í Unimog sem keyrði okkur upp næstu 1000 metrana. Við rétt mistum af eldgosi sem hafði lokið tveimur dögum áður en við létum það ekki á okkur fá. Við fengum aðeins að labba með ítölskum fjallaleiðsögumanni sem sagði okkur frá svæðinu. Þetta var ansi magnað og gaman að sjá hvað loftþrýstingurinn var lágur uppi á fjalli (sjá mynd af flöskum þar sem vinstri flösku var lokað uppi á fjallinu áður en við fórum niður). Svo fórum við niður aftur og sigldum um kvöldið og nóttina til Napólí. Á leiðinni til Napólí var skipstjórinn svo elskulegur að sigla fyrir okkur fram hjá Strombólí sem er búið að gjósa síðustu tvö þúsund árin. Við náðum nú ekkert sérstökum myndum en eina má sjá á myndasíðu.
Fyrst við vorum byrjuð á þessu eldfjallaþema var ekki úr vegi að halda áfram og á þriðja degi ferðar fórum við upp á Vesúvíus og skoðuðum Pompeii. Þetta var álíka þrautaganga og á Etnu, rútan fór með okkur nánast upp á topp og við gengum svo síðasta spölinn. Okkur til sæmdar má nefna að það var 35 stiga hiti þennan dag og það var svo sem ekkert grín að labba miklar vegalengdir. Nú Vesúvíus er alveg afskaplega fallegt fjall og útsýnið þaðan nú bara ekkert svo slæmt. Ítalinn kann nú greinilega sitt fag því uppi á gígbarminum voru þrjár túristasjoppur og þar keyptum við okkur ískalt kaffi og héldum svo aftur niður. Þegar niður kom var haldið áleyðis til Pompeii en hún grófst undir ösku í gosi frá Vesúvíus árið 79 eftir Krist. Pompeii var nokkuð stór kaupstaður með um 20 þús. íbúum en í gosinu dóu um 60% þeirra og þeir sem lifðu af fluttu í burtu eftir gosið og borgin gleymdist í 1500 ár en fannst svo fyrir slysni. Það má í raun segja að þetta sé ekki besta bæjarstæði í heimi því aðeins um 20 árum fyrir gosið hafði öflugur jarðskjálfti riðið yfir og lagt stóran hluta borgarinnar í rúst. En rómverjar voru praktískir og hafði tekist að endurbyggja mikinn hluta borgarinnar með því að plástra í ónýtar byggingar og súlur með múrsteinum (sjá myndir). Á myndum má einnig sjá afsteypur af fólki sem dó í eldgosinu. Atburðarrásin var nokkurn vegin þannig að sjóðandi heit eldfjallaaska kom á fullu skriði niður fjallshlíðarnar og gróf bæinn að fullu. Fólk var því í raun grafið á einu augnabliki. Síðan harðnaði askan utan um líkama fólks. Síðar rotnuðu líkin í burtu og eftir sat beinagrind inni í holrúmi sem hrundi ekki saman vegna þess að askan hafði harðnað. Í uppgreftinum datt svo einum spekingnum í hug að hella gifsi inn í holrúmin og brjóta svo öskuna utan af. Þannig fengust nánast fullkomnar afsteypur af íbúum bæjarins. Að Pompeiiför lokinni var aftur haldið í skipið og siglt til Civitavecchia nálægt Róm. Við ákváðum að gefa Róm frí í þetta skiptið þar sem við sáum að við myndum eflaust ekki ná mjög yfirgripsmikilli sýn á borgina með því að vera þar í 6 til 8 tíma og við lágum því í móki á skipsdekkinu allan 5 dag ferðarinnar.
Á sjötta degi ferðar vorum við í grennd Pisa og því fórum við í stutta ferð þangað og fórum svo eyddum svo afgangi dagsins á ítalskri baðströnd. Nú ýmsir vita að í Pisa er skakkur turn. Turninn ásamt fleiri byggingum voru byggð af íbúum Pisa á 11 og 12 öld að mig minnir til að monta sig á að hafa stolið Arabagulli í sjóránum. Turninn var hannaður og byggður undir forystu heimamanns en hann ráðfærði sig ekki við jarðvegsfræðinga sem hefðu getað sagt honum að fúafen eru illa til þess gerð að halda uppi montsúlum úr marmara og ekki tókst betur til en að hann fór að síga á fjórða eða fimmta ári smíðinnar og voru því einungis byggðar fjórar hæðir í fyrstu lotu. Síðan kom langt hlé en næsti arkitekt (einnig heimamaður) hélt áfram smíði turnsins og í þetta sinn var hann réttur af. Árið 1990 eða 91 var honum svo lokað fyrir almenningi vegna ótta um að hann myndi hrynja. Heilmiklar lagfæringar eru búnar að fara fram á turninum á síðustu árum en við fórum ekki upp því aðeins það fá einungis 30 manns að fara upp á hálftíma fresti og það þarf að panta og blablabla þannig að það verður kannski bara gert seinna. Það þarf kannski ekki að taka fram að í Háskólanum í Pisa er hægt að læra allt milli himins og jarðar nema arkitektúr. Eftir heimsókn í Pisa fórum við á strandklúbb og lágum þar í nokkra tíma. Þetta var heilmikil bökun sem endaði á að Alexander fékk indverskt tattú og var hæst ánægður töffari. Um kvöldið var svo siglt áleiðis til Frakklands. Þetta kvöld var haldið “Chocholate Midnight Buffet for Chocoholics”. Þetta var reyndar svolítið svindl þar sem það var bannað að borða Eiffel turninn og fleiri þekkta staði.
Síðasta degi ferðar eyddum við með stuttu stoppi í Mónakó. Við skoðuðum höllina hjá Prinsinum og hluta formúlubrautarinnar. Utan við spilavítið í Monte Carlo drukkum við svo dýrasta bjór sem við höfum smakkað en það var svo sem allt í lagi því hann var bara nokkuð góður í 30 stiga hita. Á leiðinni til og frá Mónakó keyrðum við fram hjá húsum Bono, Tinu Törner, Elton John, og einhverjum fleiri spekúlöntum. Við vorum alveg upprifin af nálægðinni við stjörnurnar og eigum eftir að lifa á þessari upplifun lengi J.
Dagurinn í Frakklandi var stuttur og um þrjú leitið var siglt til áleiðis til Spánar og við komum svo heim í hina margrómuðu Aberdeen í gærkvöldi.

Þannig er nú það í pottinn búið, förum til Glasgow að skila ormunum til pabba síns til Íslands á morgun og svo við tvö til Parísar að hitta Helenu og Davíð 2 vikum áðue en þau flytja til LA - USA. Hver veit nema við skoðum eitthvað fleira en Zara, Top Shop og H&M þar þannig að það verði hægt að vera með aðra ferðasögu.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Frábært frí!!!! PH-KCl, bara fyndið :-)

6:56 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ja en strakunum fannst thetta ekkert fyndid og their gerdu bara grin ad okkur.

10:40 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home