Það hafa þeir fullorðnu sem fyrir þeim er haft

Á ísköldu vetrarkvöldi í nóvember síðastliðnum vorum við norpandi niður í bæ eitthvað að sýsla. Töluverðs pirrings gætti í hópnum vegna kuldabolabits og almennar þreytu. Þetta var á hinum fróma vegi School hill. Þá varð Alexander litið inn um gluggan á mikilli búð er Games Workshop heitir og í glugganum sá hann Lord of the rings kalla og hina og þessa stríðskalla. Nú morðtól og ævintýraverur kalla að sjálfsögðu á unga drengi og fórum við inn í þessa búð. Og það var ekki aftur snúið, eftir þetta gengur flest hjá Alexander út á Warhammer 40000 sem er innpakkaður ævintýraheimur fyrir börn á öllum aldri. Hann er búinn að vera að safna Space marines og er þjóðflokkur sem kallast "Salamandras" en það mætti líkja þeim við blending af þeldökkum manni og ráðagóða róbotnum (Short Circuit- ef einhver man eftir honum). Í búðinni er hægt að líma og mála kalla og uppi á lofti eru spilaborð fyrir viðskiptavini. Nú þeir kalla nú ekki allt ömmu sína þeir sem reka þetta batterí enda er boðið upp á ókeypis námskeið fyrir hugsanlega og nýja neytendur þar sem þeir eru veiddir inn í leikinn.
Nú eins og margir vita er Alexander ekki fullorðinn og höfum við því þurft að skiptast á að fara með honum þegar eru spilaeftirmiðdegi. Þetta hefur orðið til þess að ég hef þurft að finna mér eitthvað til dundurs og er byrjaður að safna Orkum en þeir eru ofbeldisfyllstu kvikindin um víða veröld en enn sem komið er nær alexander alltaf að slátra mér. En bíðum og sjáum.



Mannskapurinn vaninn við spilaborðið

Heil borg úr klósettrúllum

Alexander hefur stundum verið með Benedikt í vinnu við að grunna kalla
Nýbúinn að kaupa Liðþjálfa með tvöfalda "plasmacannon" og "wide bore destroyer pistol"


7 Comments:
Mig fer að vanta vinnu og gæti örugglega grunnað kalla. Hvernig eru launin?!
Er ekki hægt að grunna kallana í auto-samplernum?
Ja þetta er nú ekki svo vitlaus hugmynd Sverrir, það er spurning um að setja Elínu í að hanna þetta ferli þegar hún er búin að skrifa masters ritgerðinni sinni. Launin eru "að drekka nokkrar rauðvínsflöskur við og við með mömmunni"
Meinti þegar hún er búin að skrifa masters rigerðina sína.
rauðvínsdrykkja með mömmunni hljómar vel!!! Ég hóa í ykkur þegar ég loksins klára ;-)
Ég panta líka hér með tíma í drykkju með mömmunni þegar ég er búin að klára. Ég get komið með módelið af Arwyn sem ég keypti í Games workshop fyrir þremur árum og er ekki enn búin að mála. Ég er viss um að það gengur betur undir áhrifum.
kv
Þórdís
Það lýst mér vel á Þórdís !
Skrifa ummæli
<< Home