Sitt lítið af hverju
Já ég veit, erum mjög lélegir bloggarar. Það er bara svo mikið að gera hjá okkur að þegar frítími gefst er bara öll "blogg-orkan" búin. Höfum samt ákveðið að vera duglegri við þetta, fyrst það voru jú við sem tókum þá ákvörðun að byrja að blogga, þannig að ekki gefast upp, halda áfram að kíkja á síðuna við og við.
Af Aberdeen Háskóla er það að frétta að útskriftir eru framkvæmdar hér í massavís með tilheyrandi koktelboðum í lystigarði háskólans. Þetta fer ekki fram hjá okkur Bergi, því deildin okkar er staðsett í miðjum garðinum. Ekki nóg með það heldur fékk Joanne Rowling (sést á meðfylgjnadi mynd), höfundur Harry Potter bókana alveg sérstaka viðurkenneningu (Doctor of Laws) fyrir framúrskarandi störf bæði í þágu ritsmíða og stykja til MS rannsókna í læknadeildinni við Aberdeen Háskóla. Við erum að vonum mjög stolt af þessum afrekum hennar og af þeim fallegum ummælum sem hún lét falla í garð háskólans og voru þau eftirfarandi:
“I am extremely honoured to be receiving this Honorary Degree from such a distinguished Scottish University, with such a dynamic international reputation". (Er þetta ekki yndislegt).
Af náminu er það að frétta að allt gengur vel. Er núna að vinna úr einni tilraun sem ég er búin að vera með gangi frá því í mars og merkilegt nokk, þá er ég bara með þessi fínustu gögn. Ég persónulega hafði enga trú á þessu hjá mér og því er ég alveg sérstaklega hamingjusöm yfir þessu. Alltaf gott þegar maður býst við engu en fær svo smá...Þetta kemur sér líka mjög vel því ég er nú á fullu að skrifa skýrslu úr öllu því sem ég er búin að gera því ég er að fara í munnlegt próf, svona "mini-vörn", með "2 internal examiners" sem munu að lokum meta hvort ég sé hæf til að halda áfram í doktorsmámi. Svo er bara stefnan á að skrifa 2 pappíra þegar ég kem heim í lok ágúst sem ætti að vera lokið um jólin. Þá verð ég bara nokkuð langt á veg komin með þetta nám mitt held ég nú barasta.
Nú nú, Bergur tekur öllu með jafnaðargeði, fær aldrei nein stressköst eins og ég (enda ekki kona) og framleiðir gögn eins og hann fái borgað fyrir það (humm, reyndar fær hann borgað fyrir það) og er á áætlun enda mikill skipulagsmaður (ég kalla hann stundum litla "ofur-auto-samplerinn minn" - smá lókal rannsóknastofu húmór).
Já svo er náttúrulega frá því að segja að við Bergur fórum í BBQ veilsu um daginn. Þar var mjög gaman og svo sem ekkert fréttnæmt um hana að segja, nema kannski frá einu sem ég er enn ekki alveg viss með hvort ég eigi að vera ánægð með eða fara í tilvistarkreppu út af.
Þannig er mál með vexti að ég skemmti mér bara stórvel, var í góðu skapi og skemmtileg tónlist í gangi. Svo skemmtileg þótti mér hún að ég hafði orð á því við gestgjafann sem sagði "Oh thanks, you must be such a cool mum". Þá kemur stóra spurningin. Þýðir þetta að viðkomandi finnist ég vera svo mikil kelling vegna þess að ég er tveggja barna móðir að ég ætti bara að hlusta á einhverja Broadway söngleiki eða á Barböru Straisand eða er ég bara svona cool pæju mamma. Er ekki viss...þarf aðeins að melta þetta áfram. Melti melti melt... er enn ekki viss...
Svo ætla ég bara að enda þetta blogg á verðlista sem hangir upp á vegg í "tearoom-inu" okkar upp í skóla. Mér finnst hann nokkuð skondinn og vildi fá að deila honum með ykkur lesendur góðir (ef einhverjir eru eftir)
Tearoom Price List
Posh Food
Devine Chocolate
Chocolate ginger buscuits
Shortbread
Maya Gold
Middle Class food
Tea (from the pot)
Apricots (organic, 100g)
Mango (organic, 50g)
Sesame bar (organic)
Crisps (large and small)
Banana chips
Yoghurt coated raisins
Mint Chocolate
Working Class Food
Twix
Bounty
Crunchie
Nuts
Kit Kat
Cheddars
Flapjack
Mixed nuts & raisins
Tillydrone fud (food) - Tillydrone er eitt af glæpahverfunum hér í Aberdeen, þar sem hægt er að finna "needle bins" inn á leikvöllunum svo litlu börnin séu ekki að leika sér með heróin nálar í sandkassanum
Pot of noodle
Carlsberg
Lollipops

5 Comments:
Þú ert náttúrulega svona kúl pæju mamma... ekki spurning!!! Enskar mömmur eiga það nefnilega til að vera dálítið kelló... ég hef oft fengið að heyra undrunaróp þegar fólk kemst að því að ég er mamma og síðan líka þegar það kemst að því að ég er 32 ára.
Gangi þér vel í mini vörninni... er einmitt ár síðan ég fór í mína og það gekk bara vel... ekkert stress....bless bless
Kúl pæju mamma it is then.......
Er pínu stressuð fyrir mini-vörnina. Gott að vita að þetta hafi ekki verið neitt hræðilegt.
Hvernær útskrifast þú eiginlega. Æltar þú ekki örugglega að útskrifast í Harry Potter skykkju og svoleiðis. Fór í svoleiðis búning þegar ég útskrifaðist úr masternum og mér fannst það svo pæjulegt og skemmtilegt.
úff ekki spyrja...ég er að skrifa þessa dagana og langar mest að sofna þegar ég tala um þessa blessuðu ritgerð zzzzzzzzz......
Ég fer sko pottþétt á útskriftina og fæ mér skikkju og hatt og alles - læt vita dagsetningu seinna *hóst hóst*
Hei, Barbara is just like butter!!!!
nei nei, þú ert voða kúl ;-)
Er að klepra við skriftir þessa dagana and absolutely hate social theory!!!
Gangi þér vel með mini-vörnina vinkona.
Er líka að klepra yfir skriftum þess vegna hangi ég bara inn á öllum bloggum sem ég kemst í.
Skrifa ummæli
<< Home