Stundum er svo gaman að vera stelpa
Athugasemd, þetta er ekki loka bloggfærsla. Hún verður nefnd LOKAFÆRSLA. Bara svona svo allt sé á tæru.
Jæja þá er draslið okkar á leið til Immingham og þaðan á skip til Íslands. Alveg er þetta merkilegt hvað maður getur sankað að sér miklu drasli á einu ári og alveg er það merkilegt að ég skuli alltaf vera jafn hissa á hverju ári. Það er nefnilega þannig að síðustu 5 ár í lífi mínu hef ég aldrei búið lengur en í 1 ár á sama stað. Hef skipt þrisvar um húsnæði á Íslandi og flutt tvisvar sinnum milli landa.
Nema hvað, er örugglega búin að henda 60 ruslapokum (ekki stórum svörtum reyndar, heldur svona meðal stórum Sainsbury´s pokum) af eintómu drasli, En annað magn fór í endurvinnslu en til að friða samviskuna fór ég með 6 poka af fötum, barnabílpúða, 2 nestisbox, 2 sett af skólabúningum og kojur í “charity chop”.
Ég segi til að friða samviskuna því mér var í alvöru flökurt á tímabili yfir hversu virk ég er í þessu neyðsluþjóðfélagi. Verst fannst mér þó hvað mér fannst ég hafa gert mikið góðverk að skila þessu af mér í “charity shop”. En eftir pínu sjálfskoðun vissi ég náttúrulega að raunverulega ástæðan fyrir því að ég fór með þetta í “charity shop” var sú að ég hafði ekki samviskunni að henda árs gömlum fötum í tunnuna svona fyrir utan það að hún var orðin troðfull. Oj barasta Rannveig, segi ég nú bara við sjálfa mig.
Billjard borðinu ætla ég að smygla inn í “tea roomið í Plant & Soil” á laugardagkvöldið, svo verða allir voða glaðir og hissa þegar þeir mæta í vinnu/skóla á mánudaginn og fara í “tea break”. Hver skyldi hafa komið með þetta, humm, Rannveig og Bergur ? Eigum við að taka einn leik og síðan munu allir faðmast og gráta voða mikið yfir því að við séum farin. Já, það er ákkúrat svona sem þetta mun verða.
Nema hvað, ætla ekki dvelja við þessar hugsanir lengur.
Framundan hjá okkur þessa vikuna er að halda kveðjuveislu. Eigum von á 30-40 gestum og það verður örugglega mjög skemmtilegt. Planið er þannig að ég, Steph og Catherine (sem eru bestu vinkonu mínar hér í Abbó) ætlum að hætta í vinnunni/skólanum í hádeginu á föstudag og skreppa í Sainbury´s og kaupa allskonar mat til að búa til svona “finger food”. Þær eru reyndar búnar að taka yfir veilsustjórnina en mér er alveg sama. Mér finnst bara fyndið og skemmtilegt hvað þær lifa sig inn í þetta. Nema hvað, svo förum við heim til mín, opnum kampavín og setjum einhverja stelputónlist á fóninn t.d. Robby Williams sem er náttúrulega lang flottastur hér í UK að minnsta kosti, og búum svo til “finger food-ið”. Nú nú, þegar þetta er allt saman tilbúið ætlum við allar í sturtu heima hjá mér (ekki saman samt ) og svo punta okkur og mála þar til gestirnir koma. Stundum er svo gaman að vera stelpa !

6 Comments:
Ji! hvað það verður gaman...bið að heilsa Robbie :D
kv
Þórdís
Skila því...hann fær rembikoss frá þér :)
Ég skil þig alveg 100%. Þetta er eitthvað sem strákar myndu aldrei gera. Þeir myndu fara í sainsbury kaupa fullt af bjór og snakki. Opna snakkið og vera búin með helminginn af bjórnum þegar gestirnir koma. Kannski erum við stelpurnar að missa af einhverju líka, en njóttu "stelpudagsins". Hlakka til að sjá ykkur. Kv Ása
Ha ha ha. Það er sko alveg rétt hjá þér...
Tja, bjór og snakk er nú líka ágætt.... En jú, stelpur rokka!!!
Góða ferð heim á Frón!
Átti ekki að koma lokafærsla?!
Skrifa ummæli
<< Home