föstudagur, ágúst 11, 2006

Frakklandsferð og lokaspretturinn

Ó mig auman, þvílík ógæfa og ómögulegheit. Í kvöld eru ekki góðar fréttir. Ég auglýsti vin minn Volvo til sölu í blaðinu í morgun og seldi hann áðan. Þvílík kvöl, þvílík pína. Enginn Volvo, engin gleði.

En Rannveig sagði: "Stattu þig strákur, horfðu fram á veginn". Og þá er víst ekki annað en að horfa fram á veginn (og einnig líta aðeins um öxl).

Við fórum til Frakklands að heimsækja Helenu og Davíð. Þetta var aldeilis frábær ferð svo ekki sé meira sagt. Ég steig ekki fæti inn í musteri mammons allan tímann sem hlýtur að teljast mjög gott af sjötíu og sex ára gömlum manni að vera.

Við byrjuðum á að fara í "Stóru höllina" og skoðuðum þar sýningu á undarlegum vélum. Þarna voru klósett á hjólum, sjálvirkir blaðsíðuflettarar, tíu tonna vélrænar bækur, eggjaloftbyssur, prumpuvélar og hitt og þetta fleira. Svo fórum við í katakompurnar og skoðuðum stafla af hauskúpum og beinagrindum. Einnig fórum við og heilsuðum upp á hana Lísu í Louvre, fórum í Pompidou, Montmartre á markaði og bara svona það sem túristar gera í París.

Að auki voru Helena og Davíð mjög dugleg að fara með okkur á alveg frábæra veitingastaði sem fara kannski framhjá túristum. Ég þreytist vart á að segja að þetta var alveg frábær ferð í alla staði. Maður uppötvar hvað Frakkar búa til ótrúlega góðan mat þegar maður kemur beint úr höfuðvígi djúpsteikingar, snakks og macaroni cheese. Daginn áður en við fórum heim fórum heim fóru Rannveig og Helena til Rúðuborgar að heimsækja ömmu frönsku og nýtti karlpeningurinn tímann vel, við byrjuðum á að fara á markaðinn að kaupa, matvæli til kvöldsins og löguðum svo til eldhúsið, flísalögðum og máluðum því þau eru að fara að flytja til LA og það þýðir víst ekki að láta leigusalann taka alla trygginguna fyrir viðgerðum. Við enduðum ferðina á að fara í picnic fyrir framan Eiffel turninn en það er eitthvað sem allir eiga að prófa, það má eiginlega segja að þetta sé eins og að sitja fyrir framan 300 metra háan kaldan varðeld, augun dragast alltaf aftur og aftur á turninn. Við getum ekki beðið eftir að fara til LA og hitta þau þar á næstunni. Við verðum bara að fara sem fyrst þannig að þau verði örugglega ekki búin að falla fyrir einhverri tískubylgju í mataræði, svo sem jurtafæði, Atkins, eða einhverru þaðan af verra svo ekki sé minnst á Bush ást.

Þá er ferðasaga búin og mál að horfa fram á veginn:

Við erum byrjuð að pakka og ganga frá okkar málum í skólanum. Við erum búin að selja alls konar drasl í gegn um póstlista í skólanum, mig langaði reyndar heilmikið að kaupa mér svartar lederhosen númer 16 sem voru til sölu en þar sem við erum með nóg dót fannst mér það ekki við hæfi.

Ætli við reynum ekki að hafa eitt lokablogg áður en við komum heim þann 21. ágúst þar sem þessi fréttaþjónusta var aðallega hugsuð til að láta fólk vita að við værum á lífi í vondu útlöndum þar sem allir hræðilegu hlutirnir gerast ólíkt litla fallega Íslandi.

5 Comments:

Blogger londonbaby said...

Eruð þið að fara heim sem sagt greyin mín? Á að skilja mann aleinan eftir í skrýtna landinu? Kem og heimsæki ykkur þá bara næst þegar ég kem til Íslands. Verðið þið á Álftanesinu enn?

kv

Þórdís

12:05 e.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Jább, þar verðum við um ókomna tíð...

3:02 e.h.  
Blogger bergurogrannveig said...

Jább, þar verðum við um ókomna tíð...

3:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það verður nú ágætt að fá ykkur heim, en ætli þið verðið ekki hálfgerðir útlendingar..:) Jahh...maður veit ekki. En ég sé að þið hafið staðið í ströngu og gert ýmislegt.
En já fyrst ég er nú að þessu þá ætla ég að koma einu að; Kveðjiði nú bleika herbergið almennilega fyrir mig ;) :)

Kv. Ingunn, AKA Au Pair # 4 (?)

11:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Er búin að kissa það og knúsa og það fór meira að segja að gráta og allt, hi hi hi

9:02 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home