þriðjudagur, janúar 10, 2006

Áfram með smjörið

Höldum þá áfram þar sem frá var horfið. Fleiri myndir ERU komnar á myndasíður sem hlekkur til hliðar vísar á. Það er kannski ágætt að það komi fram að Ceilidth eru skoskir dansar sem eru dansaðir helst eftir óhóflega neyslu matar og drykkjar. Það er skemmst frá því að segja að þetta er svaka stuð ef um gott Ceilidth band og um viljuga dansara er að ræða.

Við erum sem sagt flutt og líður mjög vel hérna. Við fengum okkur önd (sem var svona vel yfir meðallagi ánægð áður en henni var slátrað-fékk að hlaupa) í jólamatinn









en Rannveig fékk bara andanúðlur









Helena og Davíð komu svo eftir jólin og við tókum hinn hefðbundna túristahring um svæðið, skoðuðum Dunottar Castle;









fengum okkur pöbbamat í Stonehaven, brunuðum síðan til Crowie:










og enduðum ferðina á pínulitlum pöbb í Pennan sem er pínulítið þorp við hliðina á Crowie.

Um áramótin fórum við til Stonehaven þar sem sjóarar henda gömlum tjörguðum slitnum kaðalspottum út í sjó til að losa sig við ógæfu. Þeir eru reyndar hættir að nota kaðalspotta og hvað þá tjöru, nú til dags eru bara notuð efni sem brenna við mjög lágan hita til að áhorfendur slasist ekki og einungis eru notuð biodegradable efni til að höfrungarnir í Norðursjónum verði ekki veikir. Nú, það var álíka mikið af fólki þarna og á útsölu í Smáralind þannig að við sáum nú frekar lítið. Það er samt alltaf gaman að hafa gert eitthvað öðruvísi þrátt fyrir að þetta hafi svo sem ekki verið neitt fútt í þessu eins og í gamla daga.

föstudagur, janúar 06, 2006

Áramótaannáll

Þá er best að fara að vinna upp það sem stendur út á. Fleiri myndir má sjá á myndasíðunni sem linkurinn bendir á vegna þess að við nennum ekki að bíða eftir að myndirnar hlaðist inn á þessari síðu á hraða snigilsins.
Stuttu eftir síðasta blogg fóru gömlu hjónin á Ceilidt hjá deildinni. Það þótti við hæfi að húsbóndinn klæddi sig upp að sið innfæddra og hér er afraksturinn:


Nokkru seinna skutluðum við strákunum til Glasgow þar sem þeir hittu pabba sinn og skelltu sér svo í jólafrí til Flórída. Það var ægilegt stuð hjá þeim og Benedikt finnst alveg glatað að vera kominn úr fríi og finnst húsið okkar pínulítið og allt er í volli en það hlýtur að bjargast, svona sérstaklega þar sem hér er arinn og hann er alveg í kasti yfir honum.

Daginn eftir Glasgowför flugum við svo til Prag sem er í Búlgaríu eins og sumir hafa bent á. Þar var alveg frábært, að vera. Við gistum á gömlu kommasteinsteypuhóteli sem var bara mjög fínt. Leiðsögumennirnir töluðu mikið um ljótu kommablokkirnar í Tékklandi en við hjónin vorum nú sammála um það að hér í Aberdeen þurftu þeir nú enga hjálp frá kommúnistum við að skapa afspyrnu ljót fjölbýlishús. Við löbbuðum svona 11-12 tíma á dag og skoðuðum helstu menningarverðmæti þeirra tékka:

Tveir ofurskódar framleiddir fyrir upphaf niðurlægingartímabilsins undir hæl VW sem stendur enn og Karlsbrúin

Við fluttum svo í nýja húsið daginn sem við komum heim. Það var ekki búið að kynda neitt sérstaklega vel í húsinu síðustu daga og þar sem þetta er gamalt graníthús var svolítið kalt (að var eiginlega skítkalt) en það er nú komið í fínt lag þar sem umhverfissóðarnir sem minnst var á áður eru búnir að taka völdin í sínar hendur.

Þá erum við komin fram að jólum og höldum áfram á morgun þar sem nú þarf að horfa á sjónvarpið. Ennfremur koma fleiri myndir á morgun.

Rannveig og Bergur