Vefstjóri í vandræðum
kv, Bergur
Bráðabirgðaheimasíða áður en við flytjumst á nýtt vefsvæði sem er í smíðum. Hér er að finna leiðarlýsingu á ferð okkar frá Laka í Núpstaðaskóg og einnig eldri blogg frá því við bjuggum í Skotlandi
Mér tókst að efnagreina yfir 300 sýni og finnst það mikið afrek og er búin að vera að hrósa sjálfri mér alla helgina fyrir mikinn dugnað.
Það var mjög gaman í veislunni og endaði í mikilli drykkju, ólöglegt Wisky, ekki ólöglegt wisky, Saci, rauðvín, hvítvín og örugglega eitthvað fleira sem ég man ekki hvað var. Á föstudaginn fórum við svo til Egils og Rögnu að passa fyrir þau þar sem þeim var boðið á eitthvað rall.
Það sem eftir var helgarinnar var bara rólegheit. Sjónvarpsgláp, Ex factor er í mesta uppiháldi sem er ný útgáfa af Idol (ég held sko með Shane sem ég er bálskotin í því hann er svo hrikalega sætur þó Bergur sé auðvitað flottastur), bíó, lestur, út að borða á Fridays og göngutúra. 
Af strákunum er það að frétta að þeir eru himinlifandi yfir Skotlandi og þá sérstaklega yfir Skene Square Primary School sem er að þeirra sögn langbesti skóli í HEIMI. Þeir hafa aldrei verið mikið fyrir það að spara stóru orðin.
Ætla síðan að enda þetta blogg á að nokkrum myndum svona svo þið getið lifað ykkur soldið inn í okkar líf hér í Abbó.
p.s svo megið endilega fara á http://www.lbhi.is/ þar er að sjá tilkynningu um Rit LBHÍ nr. 5 sem komið út bæði á vef og prenti. Það nefnist „Aðferðir við að lýsa jarðvegssniðum“ og eru höfundar þess Ólafur Arnalds, Bergrún Arna Óladóttir og Rannveig Guicharnaud. Bara smá að monta mig.
Rannveig


