föstudagur, mars 31, 2006

mánaðaruppgjör

Það er búið að vera nóg að gera hjá famelíunni undanfarna daga, hjónin búin að fara á námskeið á Black Isle þar sem Skotum datt einhvern tíma í hug að byggja álver sem átti að bjarga landsbyggðinni en var á endanum lokað eftir nokkur ár eftir að nánast hver einasta hræða var flutt af svæðinu. Námskeiðin voru haldin í tilraunastöð háskólans í litlum bæ sem heitir Cromarty en hann er alveg við Black Isle brewery sem sumir lesendur ættu að muna eftir af góðu einu.
Þarna skoða vísindamenn bottle neck höfrunga og fleiri skepnur sem þrífast ekki nema að litlu leiti annars staðar en við Moray Firth sem er fjörðurinn utan við Inverness.
Svo erum við bæði búin að halda fyrirlestur í deildinni og það var svona smá taugastríð svo ekki sé meira sagt, en allt fór sem sagt vel á endanum og að öðru leiti erum við bara búin að vinna eins og brjálæðingar inni á labbi.

En nóg af gamla fólkinu,
Alexander fór sem sagt að keppa þar síðustu helgi á opna skoska meistaramótinu í Tae kwon do og til að gera langa sögu stutta gerði hann sér lítið fyrir og náði sér í silvur í "Sparring" en það er sá hluti íþróttarinnar sem þáttakendur slást eins og hundar undir eftirliti 5 dómara.




























Beðið með eftirvæntingu eftir að fá að berja mann og annan.


Þetta var heljarmikið mót og stóð yfir allan laugardaginn en það var eins gott að það var kaffitería í íþróttahúsinu þar við gátum keypt chips with salt and vinegar, súkkulaði, kók og kakó þannig að enginn varð svangur.






























Alexander að "buffa" heimamenn



Að loknum erfiðum degi með peninginn og þjálfaranum sínum, Mr. Murdoch

Nú það voru víst einhverjir íslenskir áhorfendur í salnum ánægðir með sinn mann en í gleðivímu láðist ljósmyndara vefsíðunnar að halda myndavélinni stöðugri og náðist því aðeins ein sæmilega sómasamleg mynd af stuðningsmönnum:



Um síðustu helgi fórum við í skógargöngu í Kirkhill forest. Í skógum er hægt að finna spýtur eins og flestir vita og nýta strákarnir sér þann möguleika ávallt þegar þeir eru þar á ferð og það lýtur út fyrir að við munum hafa eldivið þangað til strákarnir verða sjötugir ef þeir halda áfram að bera "sverð" og önnur vopn í búið.














Ennfremur vita sumir að við erfiðisvinnu í skógum þarf að næra sig og það vita strákarnir betur en flestir, því fengum við okkur snakk á skoska vísu, kakó á íslenska vísu og þrjá banana á Benedíska vísu.























myndahlekkur kominn í lag

Lesendur geta tekið gleði sína á ný því myndahlekkur hefur komið inn af sjálfu sér á undanförnum dögum, en bíðið spennt, meira blogg er á leiðinni....

þriðjudagur, mars 14, 2006

Gamanálin halda áfram

Þannig er mál með vexti að við erum að fara á tveggja og hálfs dags námskeið í næstu viku, ég fyrri partinn og Rannveig seinni partinn. Upphaflega átti þetta að vera öfugt en við þurftum sem sagt að skipta. Í þessu námskeiði þurfa þátttakendur að elda saman eitt kvöld eða svo og þarf því fólk að ákveða hvað á að vera í matinn. Vinkonur Rannveigar niðri í skóla voru eitthvað að tala um að það yrði örugglega einhver grænmetisæta með eitthvað vesen og sjá, þessi póstur var að birtast frá einum stráknum (úr Zoology, ekki Plant and Soil) sem er í hópnum hennar Rannveigar:

"Hi All,
Have we got any veggies, vegans or fruitarians ? I personally only eat
fruit and nuts that nature has given us through windfall.
£5 a head sounds pretty generous so we should be able to get a fair feast!
Any thoughts etc gives an email.
Love and Peace
Ewan"

arg.

sunnudagur, mars 12, 2006

af enn meiri vetri og vonskuveðrum

Fleiri myndir eru á myndasíðunni.

Man ekki hvort ég var búinn að segja það en skotar eru búnir að gleyma að þeir búi á norðurslóðum og þegar veturinn var búinn að læsa klónum sínum utan um norður Skotland lamaðist þjóðfélagið á endanum, yfir 100 þúsund gríslingar í fríi í skólanum og allir fastir. Nokkrir skólar voru búnir að vera lokaðir frá því á miðvikudag en strákarnir fengu ekki frí fyrr en á föstudeginum, ég held að þrumur og eldingar ofan á allt saman hafi gert útslagið og síðustu skólarnir ákveðið að loka þá. Fólk notaði þetta að sjálfsögðu sem afsökun hvort sem það væri barnafólk eða ekki og háskólinn var hálftómur.



Við skruppum í klámbúlluna á horninu hjá okkur og keyptum snjóþotu fyrir strákana og fórum út að leika. Það er reyndar svoleiðis hérna að börn mynda minnihluta þeirra sem renna sér og oftast eru þetta háskólastúdentar með fullt af bjór og þeir renna sér mest á matarbökkum sem þeir fá "lánaða" á heimavistinni.

Benedikt fór í sleepover um daginn hjá Eydísi og þau fóru svo á hestbak í Hazelhead park.


Nú veturinn leið hjá og var svona næstum því formlega lokið á mánudaginn og skólastarf hófst aftur að venju. Síðan kom bréf á miðvikudaginn frá skólastjóranum þar sem tilkynnt var að dinner ladies og skúringakonur hér í Aberdeen væru að fara í verkfall á daginn eftir. Það er víst ekki hægt að láta börnin læra í óræstu umhverfi þannig að aftur var frí á föstudaginn

Fjöldamótmæli við skóla strákanna á fimmtudaginn var. Ekki þurfti að kalla til óreirðalögreglu í þetta skiptið enda bara ein "dinner lady" og einn ræstitæknir í mótmælastöðu.

....................................................................................................................................................................................................úff hér er skítkalt, veturinn byrjaði aftur í nótt, þurfti að taka pásu til að kveikja upp í arninum. Núna er slydda og ógeð úti, með nokkura cm klakaslabbhröngli og í Glasgow er flugvöllurinn lokaður, þar snjóaði yfir 20 cm í nótt.

Ef þetta heldur svona áfram má alveg eins búast við einhverjum lokunum á morgun, kannski þó ekki inni í borginni strax en sjáum til.