sunnudagur, apríl 23, 2006

Þrefalt húrra fyrir drottningunni: Húrra, húrra, HÚRRA

Á föstudaginn var mikið um dýrðir í Sameinaða Konungdæminu, einvaldurinn áttræður. Hér á eftir fer brot af því besta sem gert var í tilefni dagsins.

Dagurinn hjá hennar hátign hófst á hefðbundnum göngutúr um Windsor í fylgd Philips prins meðal almúgans. Að loknum göngutúr dró hún sig í hlé í Windsor kastala, las afmæliskort (20 þús kort og 17 þús email), fékk sér konunglega gúrkusamloku og sérstaklega lagað te í tilefni dagsins.
Drottningin var hrærð yfir þeim fjölda heillaóskaskeyta sem henni bárust og í persónulegu þakkarbréfi sagði:
"I have been very touched by what you have written and would like to express my gratitude to you all from making this day such a special one for me"

Aðspurð hvers hún óskaði sér í afmælisgjöf sagði húneftir nokkra umhugsun.
"Oh, I don't think there's anything I'd like. A nice sunshiny day - that would be nice"

Á meðan drottningin hélt sér upptekinni með lestri almúgabréfa fór sonur hennar, Karl prins af Wales, með konunglegri tvíþekju til hinnar merku borgar Aberdeen í norðaustur Skotlandi. Þar opnaði hann nýuppgert Gordon highlanders safn að viðstöddu fögru föruneyti framámanna í borginni og umhverfi hennar. Eiginkona prinsins, Camilla hertogaynja af Rothesay, var ekki viðstödd þar sem hún var önnum kafin í undirbúningi kvöldverðar í Kew höll er stendur í hinum margrómuðu Kew grasagörðum. Karl staldraði stutt við í Aberdeen og flaug aftur heim í eftirmiðdaginn vegna undirbúnings kvöldverðarins.

Mikið var um dýrðir í Kew höll og 26 meðlimum fjölskyldunnar var boðið að njóta krónhjartarsteikur og meðlætis með Hennar hátign og ektamanni hennar hertoganum af Edinburgh.


Prinsinn af Wales og spúsa hans, Hertogaynjan af Rothesay voru gestgjafar kvöldsins.
Á gestalista voru eftirfarandi:
Hertogaynjan af Cornwall, William og Harry prinsar, hertoginn af York og dætur hans Eugenie prinsessa og Beatrice prinsessa.

Ennfremur var jarlinum og jarlynju? af Wessex boðið, Royal prinsessu og ektamanni hennar afturaðmíráli (Rear Admiral) Tim Laurence, Pétri og Zöru Phillips (almúgafólk?, nei varla), hertoganum og hertogaynjunni af Glaucesster, hertoganum og hertogaynjunni af Kent, Prinsinum og Mikjáls prinsessu af Kent og Alexöndru prinsessu.

Að lokum var Linley greifa og greifynju og Lafði Söru Chatto og Daniel Chatto boðið. Börnum Margrétar Prinsessu og spúsum þeirra var einnig boðið.

Þýtt (að mestu) og staðfært úr hinu virta fréttablaði, Evening Express.

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Að loknu páskafríi

Ja sko, hvern hefði grunað þetta, barnið bara komið með blátt bevís í bardagalistinni TKD. Tók bláa beltið um daginn úti í Peterhead sem má í raun líkja við Eyrarbakka á Íslandi, ekkert nema eitt fangelsi, félagsmiðstöð og fiskur.



















Um svipað leyti og Alex fékk beltið heimsóttum við nokkuð furðulegan bæ sem heitir Findhorn.





























Strákarnir fyrir utan "ráðhúsið" þar sem stjórnskipulegar ákvarðanir eru teknar með sérstöku tilliti til andanna sem sveima yfir lífinu og gefa gróðrinum lífskraft. Fyrir utan ráðhúsið var tjörn með fleiri tugum froska sem hafa nú fengið eitthvað sterkara heldur en vanilludropa enda var þeim alveg sama þó maður kássaðist í þeim.














Findhorn er gömul hippakommúna sem endurfæddist sem "ecovillage" fyrir nokkrum árum. Sagan er þannig að þrír hippar, hjón og vinkona fluttu til Skotlands til að reka hótel. Það gekk voða vel og hótelið var orðið nokkuð vinsælt en þá var gerð skipulagsbreyting og fólkið var rekið. Nú þau áttu ekki mikinn pening og urðu þau sér því úti um hjólhýsi og settust að á söndunum við Findhorn. Nú áfram héldu blankheitin og þau sáu því að eitthvað þurfti að gera, annari konunni datt þá í hug að ráð gæti verið að rækta matjurtir. Manninum þótti þetta þjóðráð og bar skít í sandinn og sáði. Það vildi svo vel til að önnur konan gat talað við andana sem skilja plönturnar og þeir sögðu henni hvað þeir vildu borða. Úr þessu varð heljarmikil ræktun ("The legendary garden of Findhorn") þar sem þau hjónin ræktuðu allt upp í 10 kílóa kálhausa og geri aðrir betur.

Hér anda húsin og allir eru í voða góðu sambandi við jörðina og plönturnar þannig að við komum alveg endurnærð heim í grámann í Aberdeen.














Útrás eftir rólegheitin í Findhorn

Eftir förinna til Findhorn luku strákarnir síðustu vinnuviku sinni í skólanum og Benedikt fékk loksins langþráð "Sunny Spellers Certificate" þannig að nú eru þeir báðir búnir að fá "Certificate of Achievement".

Um daginn fór Rannveig til Wales að moka mold og í tilefni þess að meðalskynsemi minnkaði markvert á heimilinu var gerð tilraun með það hvort það væri hægt að fá súkkulaðisjokk með áköfu áti kókómatvara á innan við mínútu. Þótti við hæfi að setja minnsta skrokkinn í þetta verkefni. Til að gera langa sögu stutta gerðist ekki neitt og Benedikt fékk sér þrjá banana, hamborgara og sitthvað fleira í hádegismat klukkutíma seinna. Mér þykir þetta renna enn frekari stoðum undir kenningu mína um að Benedikt sé með svarthol í maganum.















Ferðasaga frá London kemur fljótlega.