sunnudagur, júní 25, 2006

Allar myndir með þessu bloggi eru á http://community.webshots.com/user/bergurogrannveig/
Heimildamyndataka hefur ekki verið alveg samfelld á ferðalögum okkar okkar vegna rafhlöðuvandræða en myndatextinn ætta að skýra eitthvað.

Hér er búið að ganga á með heimsóknum og mannaferðum. Nýr fjölskyldumeðlimur var tekinn inn í innsta hring þegar mamma og pabbi komu í heimsókn og færðu með sér nýja vinnukonu, nefnilega Ingunni systur. Hún ætlar að vera með okkur þangað til við förum í sumarfrí. Þetta fór allt á besta veg og veðrið var að sjálfsögðu gott eins og alltaf þegar þau koma í heimsókn. Við fórum að sjálfsögðu í wiskýverksmiðju ásamt því að borða á alvöru sveitakrá. Fórum einnig í skógargöngu og gerðum sitthvað fleira okkur til dundurs. Síðan unnu hjónin í viku eða þangað til 17. júní rann upp, þá fóru flest okkar til Edinborgar á þjóðhátíðardagshátíðarhöld og pulsupartí. Á meðan við fengum okkur okkur pulsur tók Rannveig á móti ömmu sinni sem kom og var hjá okkur í viku. Svo komu Fúsi frændi Rannveigar og María kona hans á sunnudeginum og voru í tvo daga. Nú aftur var haldið af stað í wiskýverksmiðju og á skoskan sveitapöbb. Reyndum að mini eimingarketil fyrir Fúsa í bústaðinn en ekkert gekk, það verður bara að finna hann seinna. Amman fékk líka að sjá Balmoral sem er sumarafdrep kóngafjölskyldunnar þegar hún vill fá frí frá konunglegu amstri hversdagsins. Einnig fórum við á Hálandaleikana með ömmunni og horfðum á drumbakast, sekkjapípu- og danskeppnir, sjá link á vídeó hér að neðan.

http://www.youtube.com/v/k8Bsm2EORmo
Allar myndir með þessu bloggi eru á http://community.webshots.com/user/bergurogrannveig/
Heimildamyndataka hefur ekki verið alveg samfelld á ferðalögum okkar okkar vegna rafhlöðuvandræða en myndatextinn ætta að skýra eitthvað.

Hér er búið að ganga á með heimsóknum og mannaferðum. Nýr fjölskyldumeðlimur var tekinn inn í innsta hring þegar mamma og pabbi komu í heimsókn og færðu með sér nýja vinnukonu, nefnilega Ingunni systur. Hún ætlar að vera með okkur þangað til við förum í sumarfrí. Þetta fór allt á besta veg og veðrið var að sjálfsögðu gott eins og alltaf þegar þau koma í heimsókn. Við fórum að sjálfsögðu í wiskýverksmiðju ásamt því að borða á alvöru sveitakrá. Fórum einnig í skógargöngu og gerðum sitthvað fleira okkur til dundurs. Síðan unnu hjónin í viku eða þangað til 17. júní rann upp, þá fóru flest okkar til Edinborgar á þjóðhátíðardagshátíðarhöld og pulsupartí. Á meðan við fengum okkur okkur pulsur tók Rannveig á móti ömmu sinni sem kom og var hjá okkur í viku. Svo komu Fúsi frændi Rannveigar og María kona hans á sunnudeginum og voru í tvo daga. Nú aftur var haldið af stað í wiskýverksmiðju og á skoskan sveitapöbb. Reyndum að mini eimingarketil fyrir Fúsa í bústaðinn en ekkert gekk, það verður bara að finna hann seinna. Amman fékk líka að sjá Balmoral sem er sumarafdrep kóngafjölskyldunnar þegar hún vill fá frí frá konunglegu amstri hversdagsins. Einnig fórum við á Hálandaleikana með ömmunni og horfðum á drumbakast, sekkjapípu- og danskeppnir, sjá vídeó hér að neðan.

mánudagur, júní 05, 2006

Auk venjulegra skildustarfa í námi og starfi hefur fjölskyldan gert sér ýmislegt til dundurs undanfarið. Við fyrsta vott af sumri fórum við á strönd norðan við bæinn sem heitir Balmedie Beach. Ætlunin var að fara í flugdrekaleik en vindurinn stóð á sér og þurfti fjölskyldufaðirinn að hlaupa um alla strönd til að halda drekanum á lofti. En það þýddi ekkert að fara í fýlu og strákarnir fundu sér sitthvað til dundurs, byggðu virki og löguðu setlögin eftir einhverja krakkaskemmdarvarga.















Daginn eftir Balmedie kom tengdamamma/mamma/amma til okkar til að vera hjá okkur í þrjár vikur. Við nýttum tímann til hins ýtrasta í tilefni þess að vera aftur komin með fullan vinnudag á meðan amman gekk um alla borg á milli þess að koma strákunum í og úr skóla. Það lýtur út fyrir að Aberdeen City council treysti henni ekki alveg til að sjá um þetta starf því á sama tíma og þetta fyrirkomulag byrðjaði kom Alexander með þessa flík heim. Eins og hefur verið minnst á áður á þessum síðum eru skotar ansi uppteknir af "Health and Safety" en hins vegar má alveg spyrja hvort það væri kannski ráð að dreyfa endurskinsmerkjum sem hægt er að setja í vasa í stað þess að láta blessuð börnin klæðast eins og götusópara.









Ýmsir í þessari fjölskyldu segja að eitt það besta við Bretlandseyjar hljóta að vera hin margrómuðu “Tea rooms” en þar er hægt að fá te og skonsur. Þessi fyrirbæri er meðal annars hægt að finna í lok skoðunarferða í köstulum. Eitt slíkt var þefað uppi í Fyvie Castle sem er hér nokkuð fyrir utan bæinn. Ekki eru til neinar góðar myndir af kastalanum en hér á eftir má sjá hvernig er umhorfs í teherbergjum þeirra skota.



























Við fórum líka í ránfuglaleiðangur með snert af skordýraveiðum. Annars vegar fórum við á stað þar sem villt fálkapar hefur aðsetur og reynir að koma upp ungum. Þar vorum við hvött til að pissa í tunnu við hlið kamarsins þar sem mannahland ku vera ansi virkt í að halda fjallaköttum í skefjum en einn slíkur gerði sig heimankominn í grennd hreiðursins . Að lokinni villtri náttúrunni fórum við í svokallað fálkasetur þar sem fuglarnir eru álíka villtir og aligæsir. Þessir fuglar gera ekki nokkurn skapaðan hlut nema þeir séu svangir og þeir fái mat fyrir sinn snúð. Þetta var samt voða gaman og við gáfum þeim svona eins og 2-3 kjúlla úr lúkunum.






































































Annars er það að frétta af Alexander að hann er farinn að yrkja á tveimur tungum og fékk sérstaka viðurkenningu fyrir að yrkja áróðursljóð um mengunarspúandi einkabíla. Höfundar þriggja bestu ljóða úr hverjum bekk fengu formlegt heimboð í Aberdeen Environment Education Centre. Nú er hann sem sagt kominn með Græna vottun um að hann hugsi um umhverfi sitt enda hefur hann aðeins þurft að segja foreldrunum til hvernig á að haga sér í nútímaþjóðfélagi. Um daginn kom fram í blöðum að bretar borði meiri kartöfluflögur heldur en öll Vestur Evrópa samanlagt. Það er kannski ekki að undra að svo sé því þeir kunna sko að ala upp neysluna í börnunum. Í þessari virðulegu móttöku var boðið upp á samlokur og kaffi fyrir fullorðna en börnin fengu "crisps".

Hvað meir, jú fórum í sumarbústað um helgina en ég á eftir að hlaða myndunum af þeirri reisu niður á tölvuna og því verður ferðasagan að koma aðeins seinna